Viðskipti innlent

Ein hóp­upp­sögn til­kynnt í júní

Atli Ísleifsson skrifar
Frá Hólmavík þar sem rækjuvinnslan Hólmadrangur hefur verið starfrækt.
Frá Hólmavík þar sem rækjuvinnslan Hólmadrangur hefur verið starfrækt. Vísir/Vilhelm

Ein tilkynning um hópuppsögn barst Vinnumálastofnun í júní þar sem nítján starfsmönnum var sagt upp störfum í fiskvinnslu. Uppsagnirnar koma flestar til framkvæmda á tímabilinu ágúst til nóvember 2023.

Þetta kemur fram á vef Vinnumálastofnunar.

Um er að ræða uppsagnir sem ráðist var í vegna ákvörðunar Snæfells, dótturfélags Samherja, að stöðva rækjuvinnslu Hólmadrangs á Hólmavík. Tilkynnt var um ákvörðunina um miðjan mánuðinn.

Ekki var tilkynnt um neina hópuppsögn til Vinnumálastofnunar í maímánuði, en tilkynnt var um tvær hópuppsagnir í apríl.

Með hópuppsögn er átt við uppsagnir atvinnurekanda á fastráðnum starfsmönnum þar sem fjöldi starfsmanna sem sagt er upp á þrjátíu daga tímabili er að minnsta kosti 10 starfsmenn í fyrirtækjum sem venjulega hafa 21-99 í vinnu, minnst 10% starfsmanna í fyrirtækjum með 100-299 í vinnu eða minnst 30 starfsmenn þar sem venjulega eru 300 eða fleiri.


Tengdar fréttir





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×