Innlent

Alvarlegt bílslys í Þrengslum

Árni Sæberg skrifar
Bíllinn endaði á hvolfi.
Bíllinn endaði á hvolfi.

Alvarlegt umferðarslys varð í Þrengslunum á Suðurlandi á níunda tímanum í dag. Einn hefur verið fluttur slasaður á bráðamóttöku í Reykjavík.

Þetta staðfestir Sveinn Kristján Rúnarsson, yfirlögregluþjónn á Suðurlandi, í samtali við Vísi. Hann segir að einn hafi verið í bílnum, sem endaði utan vegar.

Veginum var lokað um tíma en hefur nú verið opnaður að nýju en þó þannig að umferð um hann er stýrt af lögreglu og má búast við einhverjum töfum vegna þeirrar vinnu sem er í gangi, að því er segir í tilkynningu frá lögreglu.

Mbl greindi fyrst frá slysinu.

Fréttin hefur verið uppfærð eftir að tilkynning lögreglu barst.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×