Erlent

Sögulegt hitamet gæti fallið á Ítalíu

Gunnar Reynir Valþórsson skrifar
Á Ítalíu gæti hitinn farið í 48 stig í dag, sem yrði met.
Á Ítalíu gæti hitinn farið í 48 stig í dag, sem yrði met. AP Photo/Michael Probst, File

Hitabylgja gengur nú yfir Evrópu og er búist við að hitatölur fari yfir fjörutíu gráðurnar sumstaðar á Spáni, Grikklandi, í Frakklandi, Króatíu og Tyrklandi í dag.

Á Ítalíu gæti hitinn farið í 48 gráður og yrði það þarmeð hæsta hitastig sem nokkurntímann hefur verið mælt í Evrópu. Á Ítalíu hefur rauð veðurviðvörun verið gefin út í tíu borgum, þar á meðal í Flórens og Róm. Síðasti júnímánuður var sá heitasti frá upphafi mælinga samkvæmt upplýsingum frá evrópsku stofnuninni Kópernikusi sem fylgist með loftslagsbreytingum jarðar.

Ástandið er ekki skárra í Bandaríkjunum en þar falla hitametin nú hvert af öðru og svipaða sögu er að segja frá Asíu. Í borginni Phoenix í Arizona í Bandaríkjunum hefur hitinn farið yfir 43 gráður í fjórtán daga í röð.

Ekkert bendir til annars en að það ástand vari eitthvað áfram og ljóst að metið fellur. En lengsta tímabil hingað til í borginni þar sem hitinn er yfir 43 gráðum stóð í átján dag. 115 milljónir Bandaríkjamanna búa á svæðum þar sem einhverskonar veðurviðvaranir eru í gildi.

Sextán þúsund Evrópu­menn létust vegna hlýnunar jarðar 



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×