Innlent

Sigurður mælir með Krókamýri en Þórlaug segir leiðina erfiðari

Kristján Már Unnarsson skrifar
Sigurður Sigurðarson en hann er áhugamaður um gönguleiðir.
Sigurður Sigurðarson en hann er áhugamaður um gönguleiðir. Vísir/Steingrímur Dúi

Vigdísarvallavegur var opnaður umferð á ný í dag sem gefur færi á styttri gönguleið að gosstöðvunum. Skiptar skoðanir eru þó um hvort hún sé betri.

Í fréttum Stöðvar 2 var fjallað um þennan nýja möguleika en hægt er að aka inn á leiðina frá Krýsuvíkurvegi á móts við Vatnsskarðsnámu. Í suðri tengist hún inn á Suðurstrandarveg. Við vegamótin er skilti sem segir að þetta sé jeppavegur en ekki ætlaður fólksbílum. Í Krókamýri hittum við Sigurð Sigurðarson, sem gagnrýnt hefur lokun Vigdísarvallaleiðar.

Í Krókamýri á Vigdísarvallaleið. Þar voru nokkrir bílar um miðjan dag og fór fjölgandi eftir að vegurinn var opnaður.Vísir/Steingrímur Dúi

„Ég skil bara ekki hversvegna þessi leið hefur verið lokuð hérna, Vigdísarvallaleið. Hérna er styst yfir að gosstöðvunum,“ segir Sigurður en hann er áhugamaður um gönguleiðir og ritstýrði á árum áður tímaritinu Áfangar, um útivist, ferðamál og náttúru landsins.

„Þetta heitir Krókamýri hérna og hér er styst að gosstöðvunum, aðeins fimm kílómetrar, og tiltölulega létt leið,“ segir Sigurður en tekur fram að þar séu fá bílastæði.

Gönguleiðir að gosstöðvunum. Leiðin úr Krókamýri er styst.Grafík/Hjalti

Sjálfur var hann að leggja upp í göngu að gosstöðvunum ásamt Kjartani Magnússyni borgarfulltrúa. Sigurður telur verra að ganga upp frá Vigdísarvöllum, það sé mun erfiðari leið.

Almannavarnir biðla hins vegar til fólks að ganga ekki þessa leið heldur halda sig við Meradalaleiðina sem þær segja miklu öruggari og betri. Og fjáreigendur í Grindavík eru óhressir því í Krókamýri er þeirra beitarhólf.

„Það verður ekki lengi fallegt beitiland þegar eru komnir hér þúsund bílar. Nei, þá verður þetta allt bara troðið niður,“ segir Þórlaug Guðmundsdóttir, fjáreigandi í Grindavík.

Þórlaug Guðmundsdóttir, fjáreigandi í Grindavík.Vísir/Steingrímur Dúi

Þá segir hún að göngufólk þurfi að fara yfir rafmagnsgirðingu og óttast að girðingin verði eyðilögð.

„Það liggur við að það sé alveg eins hægt að segja okkur að smala núna, ef þeir leggja niður girðinguna, svo féð fari ekki út fyrir,“ segir Þórlaug.

En er leiðin úr Krókamýri fyrir venjulegt fólk eða aðeins fyrir hrausta göngumenn?

„Þetta er fyrir alla. Það er mjög auðvelt að fara hérna upp. Þið sjáið að þetta er ekki bratt,“ svarar Sigurður.

Gönguleiðin upp úr Krókamýri. Fjær vinstra megin sést í eldgíginn við Litla-Hrút. Til hægri sést Keilir.Vísir/Steingrímur Dúi

„Þetta er ekkert betri ganga heldur en hin. Þú þarft að fara töluvert upp og svo bara beint niður hinumegin áður en þú kemur inn á Selsvellina. Þetta er erfið ganga,“ segir Þórlaug.

„Nei, nei, nei. Þetta er bara fínasta gönguleið. Þangað til þú kemur í hraunið. Menn þurfa bara að hafa vara á sér þar,“ segir Sigurður.

„Við smölum hérna á hverju ári og búin að fara margar ferðir hérna. Þetta er miklu erfiðara,“ segir Þórlaug.

Þess má geta að í Krókamýri er lækur með tæru vatni. Þar er einnig salerni á vegum Reykjanesfólkvangs.

Hér má sjá frétt Stöðvar 2:


Tengdar fréttir

Biðla til fólks að ganga ekki frá Vig­dísar­valla­vegi

Almannavarnir biðla til fólks að ganga ekki að Litla-Hrúti frá Vigdísarvallavegi sem var opnaður í morgun. Þó það sé styttra að eldgosinu í beinni loftlínu þá er engin stikuð gönguleið þaðan og leiðin því bæði erfiðari og hættulegri.

Segir Hraunssels-Vatnsfell með aðgengilegasta útsýnið

Almannarvarnir hófu strax í gærkvöldi að stika leið til að beina ferðafólki með sem öruggustum hætti að gosstöðvunum. Formaður Landsbjargar segir að illa hafi gengið á fá björgunarsveitafólk til starfa úr sumarfríi.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×