Veður

Haglél og þrumuveður í Þorlákshöfn

Ólafur Björn Sverrisson skrifar
Mikil ofankoma er í Þorlákshöfn.
Mikil ofankoma er í Þorlákshöfn. skjáskot

Haglél fellur þessa stundina á Suðurlandi. Í Þorlákshöfn er mikil ofankoma sem er af völdum þrumuveðurs sem gengur nú yfir.

Myndband af haglélinu tók Ásgeir Kr Guðmundsson og birti á Facebook.

Elín Björk Jónasdóttir veðurfræðingur hjá Veðurstofu Íslands segir að haglélið sé afleiðing þrumuveðursins.

„Skúraklakkar valda þrumuveðrinu. Það myndast hagl í þeim sem síðan bráðnar á leiðinni niður. Það er það sem fólki finnst vera snjókoma eða slydda,“ segir Elín.

Skúraklakkarnir eru há ský, oft eins og blómkál í laginu.

„Það verður hringrás í þeim þannig haglél geta orðið stór. Þegar uppstreymið nær ekki að halda þeim á lofti falla þau til jarðar eins og önnur úrkoma. Af því að það er tiltölulega hlýtt þá bráðna þau á leiðinni niður.“

„Það er tiltölulega algengt að það komi svona þrumuveður. Það er misjafnt hvort úrkoman nái alveg að bráðna á leiðinni niður eða ekki.“


Tengdar fréttir



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×