Veður

Svölu og ó­stöðugu skúra­lofti beint til landsins

Atli Ísleifsson skrifar
Þessi fíni regnbogi beið þeirra sem voru snemma á ferðinni í höfuðborginni í morgun.
Þessi fíni regnbogi beið þeirra sem voru snemma á ferðinni í höfuðborginni í morgun. Vísir/Gunnar

Lægð er nú stödd fyrir vestan land og beinir hún svölu og óstöðugu skúralofti til landsins í dag og á morgun.

Í hugleiðingum veðurfræðings á vef Veðurstofunnar segir að það ætti því ekki að koma á óvart að í sumum skúrunum sjáist haglkorn eða að þeir verði slyddukenndir. Til fjalla megi sömuleiðis búast við snjóéljum.

„Skúrirnir ná ekki yfir á norðaustanvert landið, þar verður bjart að mestu og hitinn þar getur skriðið í um eða yfir 10 stig þegar best lætur í sólskininu. Vindur í dag og á morgun verður úr suðri eða suðvestri, á bilinu 5-13 m/s.

Á miðvikudag fer lægðin til norðausturs og fjarlægist. Þá verður vindur vestlægari og lægir seinnipartinn. Ákefð skúranna dvínar og verður lítið sem ekkert eftir af þeim um kvöldið.

Á fimmtudag er síðan útlit fyrir fremur hægan vind og þurrt og bjart veður víðast hvar á landinu.

Ef við rýnum áfram í kortin, þá er á föstudag og um helgina gert ráð fyrir suðlægri átt og rigningu með köflum. Þó loftmassinn sem við búumst við í vikulokin sé rakur, þá er hann jafnframt hlýr. Lítið af rigningunni nær yfir á norðanvert landið og þar hlýnar og gæti hiti farið vel yfir 10 stigin á þeim slóðum í hjúkaþey,“ segir á vef Veðurstofunnar.

Spákort fyrir klukkan 14 í dag.Veðurstofan

Veðurhorfur á landinu næstu daga

Á þriðjudag: Suðvestan 5-13 m/s og skúrir eða slydduél, en bjart með köflum norðaustantil á landinu. Hiti 3 til 11 stig að deginum, hlýjast á Austurlandi.

Á miðvikudag: Vestan 5-13, en lægir seinnipartinn. Léttskýjað, en lítilsháttar skúrir eða slydduél á vestanverðu landinu. Hiti breytist lítið.

Á fimmtudag (uppstigningardagur): Hæg breytileg átt og víða þurrt og bjart veður. Hiti 6 til 12 stig yfir daginn.

Á föstudag, laugardag og sunnudag: Suðaustan- og sunnanátt og rigning með köflum, en úrkomulítið norðanlands. Hlýnar í veðri, einkum fyrir norðan.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×