Viðskipti innlent

Al­vot­ech fær markaðs­leyfi í Egypta­landi

Árni Sæberg skrifar
Róbert Wessmann, stofnandi og stjórnarformaður félagsins Alvotech.
Róbert Wessmann, stofnandi og stjórnarformaður félagsins Alvotech. VÍSIR/VILHELM

Alvotech og Bioventure, dótturfyrirtæki GlobalOne Healthcare Holding LLC, tilkynntu í dag að lyfjaeftirlit Egyptalands hafi veitt leyfi til framleiðslu og sölu á AVT02, líftæknilyfjahliðstæðu Alvotech við Humira.

Humira sem notað er til meðferðar við liðagigt og öðrum bólgusjúkdómum, er eitt mest selda líftæknilyf heimsins og fjöldi fyrirtækja, þar á meðal hið íslenska Alvotech, keppast við að koma hliðstæðulyfjum á markað.

Í tilkynningu um leyfisveitinguna í Egyptalandi segir að líftæknilyfjahliðstæðan verður markaðssett undir heitinu Adalimumab-EVA í Egyptalandi.

Markmiðið að auka aðgengi að hagkvæmum lyfjum

Í tilkynningu segir að líftæknilyfjahliðstæða sé lyf með sömu virkni og upprunalegt líftæknilyf. Þróun líftæknilyfja hafi á undanförnum árum leitt til framboðs af nýjum áhrifaríkum úrræðum til meðferðar ýmissa þrálátra sjúkdóma. Þegar líftæknilyfjahliðstæða kemur á markað leiði það oftast til þess að kostnaður lækkar og sjúklingar eiga greiðari aðgang að lyfinu

„Það er okkur mikil ánægja að fá markaðsleyfi fyrir AVT02 í Egyptalandi. Markmið Alvotech er að auka aðgengi sjúklinga um allan heim að hagkvæmum líftæknilyfjum og þetta er mikilvægt skref í samstarfi okkar í Miðausturlöndum og Norður-Afríku,“ er haft eftir Róberti Wessman, stjórnarformanni og forstjóra Alvotech.

Mikilvægur áfangi í samstarfinu

Þá segir að Alvotech hafi veitt Bioventure einkaleyfi til markaðssetningar AVT02 (adalimumab) í Miðausturlöndum og Norður Afríku, auk fleiri líftæknilyfjahliðstæða sem Alvotech er að þróa. Leyfi til markaðssetningar og sölu hafi þegar verið veitt fyrir AVT02 í Sádi Arabíu, þar sem lyfið verði selt undir vöruheitinu Simlandi.

„Við leggjum áherslu á að bæta aðgengi að heilbrigðisþjónustu og auka velferð sjúklinga. Um leið og við fögnum markaðsleyfinu fyrir AVT02 í Egyptalandi er þetta jafnframt mikilvægur áfangi í samstarfi Bioventure og Alvotech. Bioventure einbeitir sér að því að þróa vörur og þjónustu til að bæta lífsgæði sjúklinga, og við viljum stuðla að því að sem flestir njóti ávinningsins af notkun líftæknilyfja,“ er haft eftir Ashraf Radwan, forstjóra GlobalOne Healthcare Holding.





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×