Innlent

Hvalveiðivertíðin hefst á morgun með hertum skilyrðum

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Hvalur getur haldið til hvalveiða á morgun. Ný reglugerð á að setja veiðunum hert skilyrði.
Hvalur getur haldið til hvalveiða á morgun. Ný reglugerð á að setja veiðunum hert skilyrði. Vísir/Egill

Hvalveiðar geta hafist á morgun en með hertum skilyrðum. Svandís Svavarsdóttir matvælaráðherra ætlar að setja nýja reglugerð í dag sem ætlað er að bæta umgjörð veiða á langreyðum. Með reglugerðinni er brugðist við niðurstöðum eftirlitsskýrslu Matvælastofnunar um veiðar á langreyðum árið 2022, áliti fagráðs um velferð dýra og skýrslu starfshóps um mat á leiðum til að fækka frávikum við veiðarnar.

Frá þessu var greint á vef matvælaráðuneytisins að loknum ríkisstjórnarfundi á Egilsstöðum þar sem Svandís kynnti ráðherrum ákvörðun sína. 

Á vef ráðuneytisins segir að með hliðsjón af fyrirliggjandi gögnum frá Matvælastofnun og fagráði um velferð dýra, var það mat ráðuneytisins að veiðar á langreyðum gætu ekki farið fram í samræmi við kröfur laga um hvalveiðar og laga um velferð dýra.

Ný skilyrði snúa meðal annars að þjálfun, fræðslu, veiðibúnaði og veiðiaðferðum. Þá verður ekki heimilt að nota rafmagn við aflífun hvala þar sem of mörgum spurningum er ósvarað um þá aðferð.

„Til að bregðast við framangreindu var farin sú leið að fresta fyrirhuguðu upphafi veiðitímabilsins til 1. september. Þannig gæfist tími til að rannsaka hvort unnt væri að gera úrbætur, en í áliti fagráðs var talið vandséð að unnt væri að gera úrbætur á veiðunum. Með tilliti til hagsmuna veiðileyfishafa var tímarammi frestunar settur eins þröngur og unnt var en sem gæfi jafnframt svigrúm til að leita leiða til að minnka frávik við veiðarnar,“ segir í tilkynningunni.

Starfshópur sérfræðinga var skipaður fulltrúum matvælaráðuneytisins, Matvælastofnunar og Fiskistofu var síðan skipaður í júlí 2023. Hópurinn skyldi leggja mat á leiðir til að fækka frávikum við veiðarnar. Starfshópurinn skilaði skýrslu sinni 28. ágúst sl. og er mat hópsins m.a. að mögulegt sé að bæta veiðiaðferðir við veiðar á stórhvelum.

Með vísan til skýrslu starfshópsins telur matvælaráðuneytið að forsendur séu til að gera breytingar á veiðiaðferðinni sem geti stuðlað að fækkun frávika við veiðarnar og þar með aukinni dýravelferð.

Sett verður reglugerð sem felur í sér ítarlegar og hertari kröfur til veiðibúnaðar, veiðiaðferða og aukið eftirlit. Skilyrðin snúa m.a. að þjálfun, fræðslu, veiðibúnaði og veiðiaðferðum.

Ráðuneytið vekur athygli á því að í skýrslu starfshópsins kemur fram að ýmsum spurningum sé ósvarað varðandi mögulega virkni og áhrif rafmagns við aflífun og því gerir reglugerðin ekki ráð fyrir notkun á slíkum búnaði.


Tengdar fréttir

Hvalveiðivertíðin hefst á morgun með hertum skilyrðum

Hvalveiðivertíðin hefst á ný á morgun, 1. september. Svandís Svavarsdóttir matvælaráðherra mun í dag setja nýja reglugerð sem ætlað er að bæta umgjörð veiða á langreyðum. Með reglugerðinni er brugðist við niðurstöðum eftirlitsskýrslu Matvælastofnunar um veiðar á langreyðum árið 2022, áliti fagráðs um velferð dýra og skýrslu starfshóps um mat á leiðum til að fækka frávikum við veiðarnar.

Vaktin: Hefjast hvalveiðar aftur á morgun?

Hvalveiðar hefjast á ný á morgun. Svandís Svavarsdóttir matvælaráðherra kynnti í dag ákvörðun sína um hvalveiðar sem verða með strangara eftirlit en áður.

Mögu­leg snið­ganga Hollywood hræsni í augum Vil­hjálms

Vilhjálmur Birgisson, formaður Starfsgreinasambandsins, segist orðlaus yfir mögulegri sniðgöngu Hollywood-stjarna á Íslandi vegna hvalveiða. Hann sakar stjörnurnar um hræsni og telur að þær ættu frekar að leysa vandamál eigin lands áður en þær skipti sér að málum Íslands.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×