Lífið

„Viðbrögðin voru bara þau að ég væri fáviti“

Kristín Ólafsdóttir skrifar
Brynjar Níelsson ræddi rafskútur í Íslandi í dag í gær.
Brynjar Níelsson ræddi rafskútur í Íslandi í dag í gær.

Fyrrverandi þingmaðurinn Brynjar Níelsson er búinn að afplána óformlegt rafskútubann sem hann sætti eftir að hann féll af slíkri skútu og slasaði sig fyrir tveimur árum. Hann notar deilihlaupahjól mikið en fer varlegar en hann gerði áður - og er alltaf allsgáður.

Innreið rafhlaupahjólanna á höfuðborgarsvæðinu var tekin sérstaklega fyrir í Íslandi í dag í gær. Við ræddum við aðstoðaryfirlögregluþjón hjá umferðardeild sem segir lögreglu vanta úrræði til að takast almennilega á við málaflokkinn - og svo hittum við Brynjar Níelsson fyrrverandi þingmann, sem er búinn að jafna sig eftir mikla byltu á rafskútu fyrir tveimur árum. 

Brynjar hafði setið að sumbli í Valhöll kvöldið örlagaríka og ákvað að taka rafhlaupahjól heim, stutta vegalengd. Heimferðin gekk ekki betur en svo að Brynjar féll af skútunni á gatnamótum Kringlumýrarbrautar og Miklabrautar, rotaðist og rankaði við sér þar sem sjúkraflutningamenn stumruðu yfir honum. Brynjar rifjar upp viðbrögð vina og vandamanna við byltunni.

„Viðbrögðin voru bara þau að ég væri fáviti. Einfalt mál. Sem ég var auðvitað. Það var ekki mikil hrifning á mínu heimili með þetta eins og gefur að skilja. Og ég var lengi í rafskútubanni. En hef fengið leyfið aftur en verð að vera allsgáður,“ segir Brynjar, sem notar rafhlaupahjól mikið og er alls ekki fylgjandi banni á skútunum sem tók gildi í París nú um mánaðamótin.

„Og það eru auðvitað bara skilaboð til fólks. Þér finnst þú geta allt, þú trúir því að þetta hafi engin áhrif, þú trúir því að þú farir ekki hratt og svo framvegis. En þetta er auðvitað þannig séð slysagildra.“

Brot úr viðtalinu við Brynjar í Íslandi í dag má sjá hér fyrir neðan. Þáttinn í heild má nálgast á Stöð 2+.

Klippa: Viðbrögðin voru bara þau að ég væri fáviti

Tengdar fréttir

„Nú er ég bara dottinn í það“

„Ég er nú bara dottinn í það hérna í Borgarnesi, þó ekki á rafskútu,“ segir Brynjar Níelsson léttur í bragði þegar blaðamaður sló á þráðinn til að leita viðbragða við vendingum í ráðherraliði Sjálfstæðisflokks. Lyklaskipti verða í dómsmálaráðuneyti á morgun þegar Guðrún Hafsteinsdóttir tekur við sem dómsmálaráðherra af Jóni Gunnarssyni, sem valdi sér Brynjar sem aðstoðarmann fyrir um átján mánuðum síðan. 

Brynjar kominn í rafskútubann eftir byltuna

Brynjar Níelsson alþingismaður segir að á hans heimili sé búið að setja blátt bann við frekari rafskútunotkun, eftir að hann rotaðist við notkun á slíku tæki á dögunum. Hann varar við rafskútunotkun að kvöldi til, nú þegar farið er að dimma.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×