Innlent

Vill setja reglur um vefverslanir frekar en að afneita þeim

Jón Þór Stefánsson skrifar
„Áfengi er staðreynd í okkar samfélagi,“ segir Hildur Sverrisdóttir, þingflokksformaður Sjálfstæðisflokksins sem leggur til að netverslanir sem selji áfengi verði leyfðar í meira mæli.
„Áfengi er staðreynd í okkar samfélagi,“ segir Hildur Sverrisdóttir, þingflokksformaður Sjálfstæðisflokksins sem leggur til að netverslanir sem selji áfengi verði leyfðar í meira mæli. Vísir/Vilhelm

Hildur Sverrisdóttir, þingflokksformaður Sjálfstæðisflokksins, segir mikilvægt að setja reglur um vefverslanir sem selja áfengi hér á landi. Hún hefur lagt fram frumvarp um að leyfa verslanirnar í meira mæli hér á landi.

Hún segir Íslendinga neyta áfengis sama hvort þær reglur séu til staðar eða ekki og því skipti máli að reglurnar séu til staðar til að tryggja sanngirni á markaði.

Í viðtali í kvöldfréttum Stöðvar 2 í gærkvöldi sagði Hildur mikilvægt að halda því til haga að netverslun á áfengi væri nú þegar heimil á Íslandi í gegnum EES-samninginn. Það ætti hins vegar bara við um erlendar verslanir.

Hún segir frumvarpið snúast um að jafna leikinn fyrir aðila á íslenskum markaði, og búa til regluumgjörð um vefverslun á áfengi sem hún vill meina að sé mjög óljós í dag.

Gagnrýnisraddir hafa bent á að með vefverslunum síðustu ára hafi áfengisneysla og dagdrykkja aukist verulega á síðustu árum. Hildur var spurð hvort frumvarpið væri ekki að koma í veg fyrir lítið vandamál en á sama tíma búa til en stærra vandamál úr áfengisneyslunni.

„Aðgengi að áfengi hefur margfaldast á undanförnum árum, ekki bara í vínveitingaleyfum, ÁTVR hefur líka fjölgað sölustöðum og lengt opnunartímann og svo framvegis,“ viðurkenndi Hildur.

„Áfengi er staðreynd í okkar samfélagi. Okkur finnst því skynsamlegra að eyða fókus og fjármunum í forvarnir og fræðslu, í staðinn fyrir að afneita því að hér sé lögleg verslun til staðar, sem er miklu skynsamlegra að setja almennilega umgjörð utan um.“

Í kvöldfréttum Stöðvar 2 var einnig rætt um gagnrýni á frekari útbreiðslu áfengis. Hægt er að sjá klippuna í spilaranum hér fyrir neðan.

Hildur bendir á að þetta mál hafi verið fast innan ríkisstjórnarinnar. Hún segir ekkert launungarmál að fólk innan Vinstri grænna og Framsóknar sé ekki hrifnir af frumvarpinu.

„Það er bara staðreynd,“ bætir hún við, og segir að það sé jafnframt staðreynd að verslunin sé nú þegar til og að almenningur kunni vel við hana.

„Er ekki skynsamlegra að horfast í augu við það og setja reglur i staðinn fyrir að afneita því að hún sé hérna?“ spurði hún um netverslanirnar og beindi að spurningunni að þeim sem eru andvígir frumvarpinu.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×