Innlent

Tekur á móti minnst einum á mánuði vegna mis­taka við vara­fyllingu

Elísabet Inga Sigurðardóttir skrifar
Hannes er formaður Félags íslenskra lýtalækna.
Hannes er formaður Félags íslenskra lýtalækna. einar árnason

Lýtalæknir segir minnst einn á mánuði leita til sín vegna mistaka við varafyllingu. Fagstéttir lýsa yfir þungum áhyggjum af því að heilbrigðisráðuneytið hafi ekki sett reglur um notkun fylliefna þrátt fyrir að bent hafi verið á alvarlega, og í sumum tilfellum hættulega stöðu í áraraðir. 

Í Kompás sem sýndur var á Stöð 2 á mánudag og birtist á Vísi í gær er fjallað um hætturnar sem geta falist í því að hér á landi gilda engar reglur um hverjir mega sprauta fylliefni í varir eða andlit annarra.

Í þættinum er rætt við íslenska konu sem lenti í lífshættu eftir meðferð á snyrtistofu sem byggði á alvarlegri vanþekkingu þegar meðferðaraðili, sem ekki er læknir, sprautaði í hana lyfi til að leysa upp fylliefni sem hann hefur enga heimild til að nota. Konan fékk alvarlegt bráðaofnæmiskast en var ráðlagt af þeim sem sprautaði hana að leita ekki á sjúkrahús.

Kallar eftir reglum

Hannes Sigurjónsson, formaður Félags íslenskra lýtalækna segir félagið ítrekað og í mörg ár hafa bent Heilbrigðisráðuneytinu á alvarleika þess að ófaglærðir sprauti fylliefni í aðra, en að ekki hafi verið brugðist við. Hann vill að stjórnvöld fari sömu leið og nágrannaþjóðir okkar og banni ófaglærðum að sprauta í aðra.

„Og það eru góð fordæmi komin, sérstaklega frá Svíþjóð þar sem lögin eru mjög skýr en líka Noregi og Danmörku,“ segir Hannes Sigurjónsson, formaður Félags íslenskra lýtalækna. 

Þannig það þyrfti ekki annað en að þýða löggjöfina þar eins og gert er með mörg önnur lög hér á landi?

„ Já akkúrat, eins og við höfum margoft gert hér á Íslandi.“

Snyrtifræðingar uggandi

Félag íslenskra snyrtifræðinga gerir einnig alvarlegar athugasemdir við vinnubrögðin sem lýst er í Kompás. Í yfirlýsingu segir að félagið deili áhyggjum lækna af markaðnum með fylliefni hér á landi og fordæmir að ófaglærðir skuli gera slíkt. Þá hvetur félagið heilbrigðisráðherra til að setja reglugerð um meðferðirnar til að tryggja öryggi sjúklinga.

Hannes segir að minnst einn á mánuði leiti til hans vegna mistaka við varafyllingar. Hann segir óvissu um tryggingamál þeirra sem leita í fyllingu á snyrtistofu, mjög alvarlega.

Hver er réttarstaða skjólstæðinga ef eitthvað kemur upp á?

„Okkur sérfræðilæknum er skylt þegar við erum í stofurekstri að vera með sjúklingatrygginga. Ég veit ekki hvernig málum er háttað á snyrtistofum en þær eru ansi digrar þessar tryggingar sem okkur er skylt að vera með.“

Formaður velferðarnefndar alþingis segist mjög brugðið eftir þáttinn og hefur sent heilbrigðisráðherra skriflega fyrirspurn um hvort hann hyggist setja reglugerð um notkun fylliefna í varir.


Tengdar fréttir

Í lífs­hættu eftir fegrunar­með­ferð: Sagt að leita ekki til læknis

Á Íslandi eru efni notuð á ólögmætan hátt við fegrunarmeðferðir og ekkert eftirlit er með ófaglærðu fólki sem starfar oft í skjóli villandi starfsheita. Í Kompás er rætt við lækni sem segir markaðinn stjórnlausan og Díönu sem lenti í lífshættu eftir meðferð sem byggði á alvarlegri vanþekkingu.

Snyrti­fræðingar vilja reglu­gerð frá ráðu­neytinu

Fé­lag ís­lenskra snyrti­fræðinga gerir al­var­legar at­huga­semdir við vinnu­brögð af því tagi sem lýst er í sjón­varps­þættinum Kompási á Stöð 2 þar sem ó­fag­lærðir sinna fegrunar­með­ferðum með fylli­efnum. Þetta kemur fram í til­kynningu frá fé­laginu.

Slegin eftir um­fjöllun Kompáss og kallar eftir reglu­gerð ráð­herra

 Formaður velferðarnefndar Alþingis hefur sent Willum Þór Þórssyni, heilbrigðisráðherra, skriflega fyrirspurn um hvort hann hyggist skrifa reglugerð um notkun fylliefna og efna til að leysa upp fylliefnin. Hún segist slegin vegna þess sem fram kom í umfjöllun Kompáss í gær. 



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×