Rafíþróttir

Tilþrifin: miNideGreez! laumar sér að sprengjunni

Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar
miNideGreez! átti tilþrif gærkvöldsins.
miNideGreez! átti tilþrif gærkvöldsins.

Vísir birtir Elko tilþrif kvöldsins úr Ljósleiðaradeildinni í CS:GO eftir hvern keppnisdag í allan vetur. Í þetta sinn er það miNideGreez! í liði Breiðabliks sem á heiðurinn af tilþrifum kvöldsins.

Breiðablik varð í gær fyrsta liðið til að leggja Ten5ion og um leið vann liðið sinn fyrsta sigur á tímabilinu. Blikar eru þar með komnir með tvö stig eftir þrjá leiki, tveimur stigum minna en Ten5ion.

MiNideGreez! sýndi frábær tilþrif um miðbik leiksins í stöðunni 9-4, Breiðablik í vil. Hann var þá einn eftir á móti þremur meðlimum Ten5ion, en náði að komast nánast óséður að sprengjunni áður en hann felldi Pressa og aftengdi svo sprengjuna.

Tilþrifin má sjá í spilaranum hér fyrir neðan.

Klippa: Elko tilþrifin: miNideGreez! laumar sér að sprengjunni



Fleiri fréttir

Sjá meira


×