Rafíþróttir

Enn hægt að skrá lið í neðri deildir Ljós­leiðara­deildarinnar

Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar
Picture1

Nú er Úrvalsdeild Ljósleiðaradeildarinnar í CS farin af stað en skráning í neðri deildir hennar er enn í fullum gangi en skráningu í þær lýkur 29. september.

Leikir í neðri deildum Ljósleiðaradeildarinnar fara fram á miðvikudagskvöldum klukkan 21:00, en þó er hægt að enduskipuleggja leiktíma vilji bæði lið gera svo. Hver sem er getur skráð sig, en raðað er í deildir eftir styrkleika liðanna. 

Fyrsta deild spilar tímabil sem er samhliða Úrvalsdeildinni en deildirnar þar fyrir neðan, kallaðar „Áhugamannadeildirnar“ hafa haustdeild og vordeild hvor um sig.

Fleiri upplýsingar um mótið og skráningu má finna inn á heimasíðu Rafíþróttasambands Íslands með því að smella hér.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×