Innlent

Býður upp á bótox án nokkurrar læknis­menntunar

Elísabet Inga Sigurðardóttir skrifar
Engar reglur gilda um fylliefni hér á landi en mjög strangar reglur gilda um bótox. 
Engar reglur gilda um fylliefni hér á landi en mjög strangar reglur gilda um bótox.  kompás/skjáskot

Meðferðaraðili í Reykjavík býður upp á bótox þrátt fyrir að vera ekki með læknismenntun. Snyrtifræðingur segist ítrekað hafa tilkynnt stofuna, en að ekkert sé aðhafst.

Í Kompás sem sýndur var í vikunni er fjallað um hætturnar sem geta falist í því að hér á landi gilda engar reglur um hverjir mega sprauta fylliefni í varir eða andlit annarra. Í þættinum var rætt við íslenska konu sem lenti í lífshættu eftir varafyllingu á snyrtistofu sem byggði á alvarlegri vanþekkingu.

Kristín María Kristmannsdóttir, snyrtifræðingur, segir ömurlegt að hópur fólks sverti orðspor heillar stéttar. Snyrtifræðingar séu fagstétt og gagnrýnir að snyrtistofum án tilskilinna réttinda fari fjölgandi.

„Þetta er lögvernduð starfsgrein og þú þarft að fara í skóla og fá sveinsprófsréttindi til að geta starfað í greininni. En það virðist bara sem hver sem er geti opnað stofu án þess að vera með nokkur réttindi.“

Finnið þið fyrir því að margir sem ekki hafa sveinspróf opni stofur hér og þar og stunda alls konar meðferðir? 

„Guð minn almáttugur já. Þetta er bara úti um allt.“

Hún segist ítrekað hafa tilkynnt stofu sem ólöglega bjóði upp á bótox.

„Það er ekkert gert, það er engin sekt. Ekkert. Þau láta þetta bara fljóta fram hjá sér.“

Kristín María segist ítrekað hafa tilkynnt stofu sem bjóði upp á bótox og aðrar meðferðir en að ekki sé hlustað. Hún hefur áhyggjur af stöðunni.aðsend

Þessi stofa sem þú ert að vísa í, hvað býður hún upp á? 

„Til dæmis bótox og fylliefni, gatanir og tattú, líkamstattú.“

Þú ert búin að láta ítrekað vita af þessu og enginn gerir neitt? „Enginn gerir neitt,“ segir Kristín.

Eins og sést er mjög auðvelt er að panta tíma í bótox á netinu.skjáskot/vísir

Einungis læknar mega nota bótox

Ólíkt fylliefnum gilda strangar reglur um notkun bótox hér á landi. Um er að ræða lyf sem einungis læknar með sérfræðiþekkingu og reynslu af mega gefa.

Við hringdum í umrædda stofu og athuguðum hvort hægt væri að fá tíma í bótox.

Er hægt að panta tíma í bótox hjá ykkur? „Já.“ 

Sprautar þú þá í mig? „Við erum með frábæran snyrtifræðing sem gerir það.“ 

Er hún læknir? „Hún er fagmaður, er með margra ára reynslu í þessu.“

Meðferðaraðilinn er samkvæmt símtalinu snyrtifræðingur með mikla reynslu. Hann er ekki læknir og ekki heldur heilbrigðisstarfsmaður þar sem ekki er unnt að finna hann í sérleyfaskrá Landlæknis.


Tengdar fréttir

Í lífs­hættu eftir fegrunar­með­ferð: Sagt að leita ekki til læknis

Á Íslandi eru efni notuð á ólögmætan hátt við fegrunarmeðferðir og ekkert eftirlit er með ófaglærðu fólki sem starfar oft í skjóli villandi starfsheita. Í Kompás er rætt við lækni sem segir markaðinn stjórnlausan og Díönu sem lenti í lífshættu eftir meðferð sem byggði á alvarlegri vanþekkingu.

Slegin eftir um­fjöllun Kompáss og kallar eftir reglu­gerð ráð­herra

 Formaður velferðarnefndar Alþingis hefur sent Willum Þór Þórssyni, heilbrigðisráðherra, skriflega fyrirspurn um hvort hann hyggist skrifa reglugerð um notkun fylliefna og efna til að leysa upp fylliefnin. Hún segist slegin vegna þess sem fram kom í umfjöllun Kompáss í gær. 

Snyrti­fræðingar vilja reglu­gerð frá ráðu­neytinu

Fé­lag ís­lenskra snyrti­fræðinga gerir al­var­legar at­huga­semdir við vinnu­brögð af því tagi sem lýst er í sjón­varps­þættinum Kompási á Stöð 2 þar sem ó­fag­lærðir sinna fegrunar­með­ferðum með fylli­efnum. Þetta kemur fram í til­kynningu frá fé­laginu.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×