Innlent

„Við borgum það ekki með glöðu geði, heldur með ó­bragð í munni“

Bjarki Sigurðsson skrifar
Gunnar H. Jónasson starfar í Kjötborg.
Gunnar H. Jónasson starfar í Kjötborg. Vísir/Steingrímur Dúi

Gjaldskyldutími í bílastæði miðsvæðis í Reykjavík lengdist í dag og borga þarf meira á ákveðnum stöðum. Verslunareigendur segja gjaldtökuna ósanngjarna og skref í ranga átt.

Ný gjaldskrá bílastæða Reykjavíkurborgar tók gildi í dag. Í fyrsta sinn þarf að greiða í stæði á sunnudögum og til klukkan níu á kvöldin. Ekki eru allir sáttir við nýju gjaldskrána.

Klippa: Ósáttir við hækkun

Uppfærða gjaldskráin snýr að mestu leyti að gjaldsvæðum P1 og P2 sem sjá má hér á kortinu. Gjaldskyldutíminn þar hefur verið lengdur til klukkan níu á kvöldin og þá þarf að greiða í stæðin á sunnudögum. Einnig hækkar gjald á gjaldsvæði P1 í 600 krónur á tímann. Gjaldskylda á svæði P3 fellur niður á laugardögum en engar breytingar eru gerðar á svæði P4.

Í fréttinni hér fyrir neðan má lesa nánar um breytingarnar.

Skref í vitlausa átt

Verslunin Kjötborg er staðsett á Ásvallagötu sem er á gjaldsvæði P2. hún rekin af bræðrunum Gunnari og Kristjáni Jónassonum. Þeir hafa lengi kvartað yfir því að þurfa að greiða í stæði við verslunina og er það nú enn dýrara fyrir þá að mæta í vinnuna.

„Við erum mjög ósáttir við að hafa himinhá fasteignagjöld í rekstrinum og hafa ekki einu sinni bílastæði. Kristján er eigandi húsnæðisins og ég get fengið að leigja stæði af fólki sem vill ekki eiga bíl. En þá þarf ég að færa lögheimilið til þeirra,“ segir Gunnar.

Verslunin Kjötborg er staðsett við Ásvallagötu.Vísir/Steingrímur Dúi

Bræðurnir þurfa mikið að notast við bíla sína í vinnunni til að ná í vörur og annað.

„Við reynum að borga til að sleppa við sektirnar. Við erum búnir að borga nokkrum sinnum sekt. Við borgum það ekki með glöðu geði, heldur með óbragð í munni,“ segir Gunnar.

Vilja íbúakort

Þeir vilja fá að leggja við verslunina án þess að þurfa að greiða fyrir það.

„Okkur fyndist eðlilegt ef við fengjum þessi íbúakort eins og aðrir. Þó við værum ekki íbúar því maður má víst ekki búa á vinnustaðnum sínum. Okkur finnst það óeðlilegt,“ segir Gunnar. 



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×