Rafíþróttir

Tilþrifin: Peter birtist úr reyknum og tekur út þrjá

Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar
pési

Vísir birtir Elko tilþrif kvöldsins úr Ljósleiðaradeildinni í CS:GO eftir hvern keppnisdag í allan vetur. Í þetta sinn er það Peter í liði Þórs sem á heiðurinn af tilþrifum kvöldsins.

Þetta er í annað sinn á tímabilinu sem Peter á heiðurinn af tilþrifum kvöldsins, en það gerðist einnig í fyrstu umferð fyrir sléttum mánuði síðan.

Þá sýndi Peter frábær tilþrif er Þórsarar unnu góðan sigur gegn Ármanni, en í gær gerði hann það í sigri gegn Breiðablik.

Þórsarar unnu öruggan sigur gegn Breiðablik í gær og í stöðunni 14-4 beið Peter þolinmóður inni í reyknum og var svo fljótur að átta sig er hann sá umhverfið sitt á ný.

Tilþrifin má sjá í spilaranum hér fyrir neðan.

Klippa: Elko tilþrifin: Peter birtist úr reyknum og tekur út þrjá



Fleiri fréttir

Sjá meira


×