Rafíþróttir

Ofurlaugardagur í Ljósleiðaradeildinni

Ágúst Orri Arnarson skrifar
Kraken og Eddezennn eiga stórleik fyrir höndum
Kraken og Eddezennn eiga stórleik fyrir höndum

Á morgun er ofurlaugardagur í Ljósleiðaradeildinni, en ofurlaugardagar fela í sér að heil umferð er spiluð á einum og sama deginum. Fyrsti leikur hefst kl. 17:00 og fer öll útsendingin fram í Arena, þar sem gestagangur verður hjá lýsendum kvöldsins.

Í fyrsta leik mætast ÍBV og Þór, en ÍBV mæta enn sigurlausir gegn Þórsurum sem hafa verið í formi. Ten5ion og ÍA mætast í öðrum leik og hafa þá ÍA tækifæri til að nálgast toppbaráttuna sem þeir hafa dottið úr eftir tvö töp í jafn mörgum leikjum.

Kl. 19:00 mætast Saga og Atlantic sem bæði hafa átt slaka byrjun á tímabilinu og þurfa bæði því nauðsynlega á sigri að halda. Sömu sögu má segja af FH og Breiðablik sem mætast í fjórðu viðureign og prýða bæði neðri hluta töflunnar.

Ofurlaugardagurinn endar svo á stórleik NOCCO Dusty gegn Ármanni, en aðeins 2 stig skilja liðin af í toppsætum deildarinnar. Ármann hefur því tækifæri á að jafna Dusty á toppi deildarinnar með sigri.

Dagskrá ofurlaugardagsins í Ljósleiðaradeildinni

Tengdar fréttir

Tilþrifin: Peter birtist úr reyknum og tekur út þrjá

Vísir birtir Elko tilþrif kvöldsins úr Ljósleiðaradeildinni í CS:GO eftir hvern keppnisdag í allan vetur. Í þetta sinn er það Peter í liði Þórs sem á heiðurinn af tilþrifum kvöldsins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×