Innlent

Slösuð fyrir lífstíð eftir harkalegan árekstur í Ölfusi

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Áreksturinn varð á gatnamótum Eyrarbakkavegar og Þorlákshafnarvegar norður af Þorlákshöfn.
Áreksturinn varð á gatnamótum Eyrarbakkavegar og Þorlákshafnarvegar norður af Þorlákshöfn. Vísir

Rúmlega sjötugur bandarískur karlmaður búsettur vestan hafs sætir ákæru fyrir að hafa sumarið 2021 ekið bíl Mazda CX-30 bíl í veg fyrir Chevrolet Malibu bíl á gatnamótum Eyrarbakkavegar og Þorlákshafnarvegar án þess að virða forgang sem gefin var til kynna með stöðvunarmerki.

Árekstur varð með þeim afleiðingum að 26 ára kona hlaut alvarleg meiðsl sem líklegt er að hái henni fyrir lífstíð.

Ákæran er birt í Lögbirtingablaðinu í dag en Lögreglustjórinn á Suðurlandi grípur til þess úrræðis þar sem ekki hefur náðst til bandaríska karlmannsins. Þar er hann boðaður í dómþing við Héraðsdóm Suðurlands þann 30. nóvember. Mæti hann ekki þá sé það metið til jafns við viðurkenningu að hafa framið brotið.

Manninum er gefið að sök að hafa ekki sýnt nægjanlega aðgæslu við akstur fimmtudaginn 24. júní 2021 með fyrrnefndum afleiðingum. 

Í einkaréttakröfu lögmanns konunnar kemur fram að karlmaður hafi orðið vitni að árekstrinum. Sá ók á eftir bíl Bandaríkjamannsins vestur Eyrarbakkaveg þegar komið var að stöðvunarskyldu við Þorlákshafnarveg. Haft er eftir karlmanninum að hann væri ekki viss hvort Bandaríkjamaðurinn hefði stöðvað eða hægt ferð sína en hafi svo ekið í veg fyrir Chevrolet-bílinn.

Vitnið hafi tjáð lögreglu að Bandaríkjamaðurinn hefði ranglega talið að hann væri í rétti og að bifreið konunnar hefði því átt að stöðva. Lögmaður konunnar segir í einkaréttakröfu sinni að Bandaríkjamaðurinn hafi greinilega verið á miklum hraða því úr varð harður árekstur þar sem konan varð fyrir miklu líkamlegu og andlegu tjóni.

Krafist er miskabóta upp á þrjár milljónir króna og skaðabóta upp á 400 þúsund krónur. Konan varð fyrir miklu líkamlegu og andlegu þjóni í árekstrinum. Í vottorði heimilislæknis kemur fram að konan hafi verið frá vinnu vegna afleiðinga slyssins fram í apríl 2022. Þá hafi hún verið í samtalsmeðferð hjá sálfræðingi til að halda andlegum afleiðingum í skefjum.

Meiðslum konunnar er lýst nánar í ákærunni. Þar segir að hún hafi fengið slink á hálshrygg, herðar, brjósthrygg, lendhrygg, spjaldhrygg og mjaðmir ásamt því að meiða sig í hnjám er þau rákust í mælaborðið. Þrátt fyrir þrotlausa endurhæfingu, bæði líkamlega og andlega hafi hún ekki jafnað sig af þeim alvarlegu áverkum sem hún hlaut í slysinu og muni þeir hafa áhrif á hana það sem eftir er.

Fréttin hefur verið uppfærð.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×