Innlent

Ekkert bendi til þess að bandaríski auðkýfingurinn sé ökuníðingur

Hallgerður Kolbrún E. Jónsdóttir skrifar
Stúlkan, sem var á leið frá Þorlákshöfn, endaði úti í vegkanti og mun glíma við afleiðingarnar fyrir lífstíð.
Stúlkan, sem var á leið frá Þorlákshöfn, endaði úti í vegkanti og mun glíma við afleiðingarnar fyrir lífstíð. Guðmundur Oddgeirsson

Ekkert bendir til þess að sjötugur bandarískur karlmaður, sem olli alvarlegu bílslysi í Ölfusi sumarið 2021, hafi keyrt of hratt eða óvarlega. Vitni að slysinu segir slysið hafa verið byggt á misskilningi á umferðarreglum. Sá bandaríski hafi ekki verið á hraðferð eins og fullyrt er í skaðabótakröfu.

Greint var frá því á Vísi á mánudag að rúmlega sjötugur bandarískur karlmaður búsettur vestan hafs sæti ákæru fyrir að hafa sumarið 2021 ekið bílaleigubíl fyrir annan á gatnamótum Eyrarbakkavegar og Þorlákshafnarvegar án þess að virða forgang sem gefin var til kynna með stöðvunarmerki. 

Fram kemur í ákærunni að 26 ára íslensk kona, sem Bandaríkjamaðurinn ók á, hafi hlotið alvarleg meiðsl sem líklegt er að hái henni fyrir lífstíð. Í einkaréttarkröfu er vísað í vitni að árekstrinum, sem ók á eftir bíl Bandaríkjamannsins vestur Eyrarbakkaveg. Vitnið, Guðmundur Oddgeirsson, segir í samtali við Vísi ekkert benda til að Bandaríkjamaðurinn hafi farið óvarlega heldur hafi slysið orsakast af vanþekkingu ferðamannsins á íslenskum umferðarlögum.

Til happs að konan rakst ekki á framhurðina

Fram kemur í einkaréttakröfunni að Guðmundur hafi ekki verið viss hvort að Bandaríkjamaðurinn hafi stöðvað bíl sinn á gatnamótunum eða hægt ferð sína. 

„Konan er að koma úr Þorlákshöfn og er væntanlega á þeim umferðarhraða sem þarna tíðkast, 80 eða 90 kílómetrum á klukkustund. Þess vegna verður áreksturinn svona harður, ekki vegna þess að maðurinn var á hraðferð,“ segir Guðmundur. 

Bíll Bandaríkjamannsins var illa farinn.Guðmundur Oddgeirsson

„Það var svo heppilegt að áreksturinn varð með þeim hætti að bíll konunnar lenti fyrir framan framhurðina á bíl hans og hún náði að sveigja svolítið frá. Það var þeim til happs því þetta var gríðarlega harður árekstur.“

Hringtorg öruggasti kosturinn

Guðmundur segir þunga umferð hafa verið um veginn og bílaröð verið á eftir honum á Eyrarbakkavegi. Hann hafi sjálfur boðið Bandaríkjamanninum inn í sinn bíl á meðan beðið var eftir viðbragðsaðilum. Konan hafi farið í bíl annarrar konu á meðan þau biðu. 

Guðmundur var vitni að slysinu en segir Bandaríkjamanninn ekki málaðan í réttri mynd í ákærunni.

Guðmundur segir Bandaríkjamanninn hafa talið að rétt eins og sums staðar í Bandaríkjunum gilti biðskylda fyrir alla á T-gatnamótum eins og þessum. Sá bandaríski hafi því talið að sá sem kæmi fyrst að gatnamótunum, það er Bandaríkjamaðurinn sjálfur, ætti réttinn. 

„Það á ekki að gera meira úr hlutunum en er og ekki að mála hann upp eins og einhvern ökuníðing. Þetta er byggt á misskilningi vegna mismunandi ökureglna milli landa sem leiðir til þessa hörmulega slyss. Það eru nokkuð tíð óhöpp á þessum stað og nærriþví-óhöpp. Ég á leið um þessi gatnamót daglega og lendi sjálfur í því að fólk vaði þarna yfir í órétti,“ segir Guðmundur.

„Það þarf að bæta þessi gatnamót með einhverjum hætti. Öruggast væri að hafa hringtorg.“

Að því er fréttastofa kemst næst er Bandaríkjamaðurinn sem um ræðir auðugur fjárfestir og verðbréfasali vestanhafs. Nam hann við Harvard háskóla og mun hafa starfað meðal annars fyrir bankann Lehmann Brothers og vogunarsjóðinn Moore Capital áður en hann stofnaði eigið fyrirtæki. Maðurinn játaði sumarið 2022, eftir að hafa verið til rannsóknar hjá Alríkislögreglunni FBI, að hafa átt í innherjaviðskiptum.

Bandaríkjamaðurinn hefur af lögreglustjóranum á Suðurlandi verið kvaddur fyrir Héraðsdóm Suðurlands 30. nóvember næstkomandi til að hlýða á ákæru, halda uppi vörnum og sæta dómi. Mæti hann ekki fyrir dóm verður fjarvist hans metin til jafns við játningu. Konan sem sá bandaríski ók á hefur krafist skaða- og miskabóta upp á 3,4 milljónir króna.


Tengdar fréttir

Slösuð fyrir lífstíð eftir harkalegan árekstur í Ölfusi

Rúmlega sjötugur bandarískur karlmaður búsettur vestan hafs sætir ákæru fyrir að hafa sumarið 2021 ekið bíl Mazda CX-30 bíl í veg fyrir Chevrolet Malibu bíl á gatnamótum Eyrarbakkavegar og Þorlákshafnarvegar án þess að virða forgang sem gefin var til kynna með stöðvunarmerki.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×