Innlent

Al­var­legt um­ferðar­slys í Hafnar­firði

Jón Þór Stefánsson skrifar
Lögregluaðgerðirnar eru við Ásvallalaug í Hafnarfirði.
Lögregluaðgerðirnar eru við Ásvallalaug í Hafnarfirði. Aðsend

Alvarlegt umferðarslys varð við Ásvelli í Hafnarfirði síðdegis í dag, eða á sjötta tímanum. Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglu.

„Viðbragðsaðilar eru við störf á vettvangi, en lokað er fyrir umferð við slysstaðinn og í næsta nágrenni hans,“ segir í tilkynningunni, en þar er jafnframt tekið fram að ekki sé hægt að veita frekari upplýsingar að svo stöddu.

Frá vettvangi slyssins nærri Ásvallalaug.

Lögregla, sjúkralið, og slökkvilið hafa sést á vettvangi.

Fréttin hefur verið uppfærð.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×