Innlent

Bændur eru meira og minna í sjálf­boða­vinnu alla daga

Magnús Hlynur Hreiðarsson skrifar
Gunnar Þorgeirsson, formaður Bændasamtaka Íslands á opna fundinum hjá Framsóknarfélagi Árborgar, sem haldin var á Selfossi í gær. Hann kom víða við í framsögu sinni.
Gunnar Þorgeirsson, formaður Bændasamtaka Íslands á opna fundinum hjá Framsóknarfélagi Árborgar, sem haldin var á Selfossi í gær. Hann kom víða við í framsögu sinni. Magnús Hlynur Hreiðarsson

„Bændur eru meira og minna í sjálfboðavinnu alla daga við að framleiða matvæli ofan í íslenska þjóð“, segir formaður Bændasamtakanna, sem vandar alþingismönnum og ráðherrum ekki kveðjur sínar.

Gunnar Þorgeirsson, formaður Bændasamtaka Íslands var gestur á opnum fundi Framsóknarfélags Árborgar í gær þar sem hann fór yfir stöðu bænda og íslensks landbúnaðar almennt eins og hann er í dag.

Í máli Gunnars kom meðal annars fram að markmið búvörulaga væri til dæmis að bændur skuli ávallt tryggja nægjanlegt vöruframboð við breytilegar aðstæður í landinu og að kjör þeirra, sem stunda landbúnað skulu vera í sem nánasta samræmi við kjör annarra stétta.

„Þannig að við segjum bara, erum við að brjóta lög á hverjum einasta degi þar sem bændur eru orðnir meira og minna í sjálfboðavinnu við að framleiða matvæli ofan í íslenska þjóð. Og svo stendur bara að ríkisvaldinu ber að tryggja afkomu bænda og ríkisvaldinu ber að tryggja starfsskilyrði í landbúnaði. Þetta stendur í búvörusamningum, sem að matvælaráðherra skrifaði undir og fjármálaráðherra. Og þá segir maður bara, hvernig ætlum við að standa undir því að samningar, sem búið er að skrifa undir uppfylli þessi skilyrði þannig að bændur geti lifað sómasamlegu lífi,“ sagði Gunnar á fundinum.

Gunnar sagði á fundinum að bændur væru að vinna meira og minna í sjálfboðavinnu alla daga á búum sínum.Magnús Hlynur Hreiðarsson

En hvernig er staða íslensks landbúnaðar í dag?

„Það er bara mjög erfitt mjög víða. Það er alveg sama um hvaða grein við erum að tala, sama hvort það er sauðfjárrækt, kúabúskapur eða garðyrkja, alls staðar,“ segir Gunnar.

Er fjöldi gjaldþrota fram undan?

„Já, ég hef áhyggjur af því ef ekkert verður brugðist við, þá verður það sennilega raunin, því miður.“

Og Gunnar vandaði ekki alþingismönnum og ráðherrum kveðjur sínar á fundinum og sagði stéttina hafa lítinn sem engan áhuga á íslenskum landbúnaði þrátt fyrir fögur orð á hátíðarstundum.

Finnst þér stjórnvöld vera áhugalítil?

„Já, þau eru búin að vera mjög áhugalítil allt þetta ár. Nú er allt í einu farið að sverfa til stáls og þá segja menn allt í einu, já, við hefðum kannski átt að ræða þetta fyrr," segir Gunnar.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×