Innlent

Land­helgis­gæslan og lög­regla um borð í Amelíu Rose

Margrét Björk Jónsdóttir skrifar
Landhelgisgæslan vísaði Amelíu Rose til hafnar á Akranesi þar sem lögregla beið þess.
Landhelgisgæslan vísaði Amelíu Rose til hafnar á Akranesi þar sem lögregla beið þess. Vísir/Margrét Björk

Landhelgisgæslan stöðvaði farþegaskipið Amelíu Rose um átta sjómílur úti fyrir Akranesi í dag. Í ljós kom að farþegafjöldi á skipinu var margfaldur miðað við leyfilegan fjölda. Upplýsingafulltrúi Landhelgisgæslunnar segir málið alvarlegt en skipið hafi ítrekað verið stöðvað með of marga farþega. 

Ásgeir Erlendsson, upplýsingafulltrúi Landhelgisgæslunnar segir varðskipið Þór hafa verið við hefðbundið eftirlit í dag þegar farið var um borð í skipið.

„Þar kom í ljós að um borð voru allt of margir farþegar miðað við útgefið farþegaleyfi þessa skips á þessum stað. Í kjölfarið var skipinu vísað til hafnar í þágu rannsóknar en næsta höfn var Akranes. Þar tóku lögreglumenn á móti skipinu og töldu upp úr því og tóku skýrslu af skipstjóranum.“

Amelía Rose við Akraneshöfn í dag. Vísir/Margrét Björk

Um áttatíu manns voru um borð sem aðeins hefur leyfi fyrir tólf.  Ásgeir segir verklag skýrt við þessar aðstæður, Landhelgisgæslan vísi skipi til næstu hafnar sem í þessu tilfelli var Akranes.

„Öryggi farþega skiptir okkur mestu máli. Okkur ber að framfylgja lögum á hafsvæðinu umhverfis Ísland og það er alvarlegt ef of margir farþegar eru um borð miðað við útgefið farþegaleyfi.“

Ítrekað verið stöðvað með of marga farþega

Þetta er langt í frá í fyrsta skipti sem afskipti eru höfð af Amelíu Rose vegna of margra farþega. Skipinu hefur ítrekað verið snúið í land af Landhelgisgæslunni að undirlagi Samgöngustofu. Forsvarsmenn fyrirtækisins hafa gert alvarlegar athugasemdir við þessar aðgerðir og sakað yfirvöld um einelti.

„Átyllan er ævinlega sú sama: Amelía Rose er sögð sigla of langt út á haf – miðað við farþegafjölda um borð. Það sem er óskiljanlegt við aðfarir Landhelgisgæslunnar og Samgöngustofu er að vorið 2021 féll dómur í Héraðsdómi Reykjavíkur þar sem Sea Trips var sýknað af öllum kröfum hins opinbera varðandi farsvið og farþegafjölda. Dómnum var ekki áfrýjað,“ segir í tilkynningu sem fyrirtækið gaf út á síðasta ári.

Um áttatíu farþegar voru um borð í skipinu sem aðeins er með leyfi fyrir tólf. Vísir/Margrét Björk

Forsvarsmenn Seatrips sem gerir út Amelíu Rose, höfðu sótt um hjá Samgöngustofu að skráningu á skipinu yrði breytt í skipaskrá þannig að það teldist gamalt skip en ekki nýtt. Væri skipið skráð gamalt mætti flytja fleiri en tólf farþega um borð í því. Samgöngustofa synjaði erindinu, en forsvarsmenn fyrirtækisins kærðu þá ákvörðun. Hæstiréttur staðfesti ákvörðun Samgöngustofu í síðustu viku.

Hægt er að lesa ítarlega frétt um dóminn hér að neðan. 

Ásgeir segir ekki ljóst hvaða afleiðingar málið í dag muni hafa.

„Það fer í hefðbundið ferli. Það var tekin skýrsla af skipstjóra af lögreglu og síðan verður framhaldið að ráðast.“


Tengdar fréttir

Hæsti­réttur tekur mál Amelíu Rose fyrir

Samgöngustofa hefur fengið málskotsbeiðni sína til Hæstaréttar í máli gegn ferðaþjónustufyrirtækinu Seatrips ehf. samþykkta. Hæstiréttur telur dóm í málinu geta haft fordæmisgildi og að á dómi Landsréttar kunni að vera ágallar.

Hæsti­réttur tekur mál Amelíu Rose fyrir

Samgöngustofa hefur fengið málskotsbeiðni sína til Hæstaréttar í máli gegn ferðaþjónustufyrirtækinu Seatrips ehf. samþykkta. Hæstiréttur telur dóm í málinu geta haft fordæmisgildi og að á dómi Landsréttar kunni að vera ágallar.

Sam­­göngu­­stofa sver af sér á­sakanir um ein­elti

Samgöngustofa tekur fyrir þá fullyrðingu forsvarsmanna Sea Trips að meðferð Samgöngustofu á fyrirtækinu sé ekki hægt að kalla annað en einelti. Skipi Sea Trips, Amelíu Rose, hefur ítrekað verið snúið í land af Landhelgisgæslunni að undirlagi Samgöngustofu.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×