Viðskipti innlent

Þór­dís Anna nýr fram­kvæmda­stjóri fjár­mála 66° Norður

Árni Sæberg skrifar
Þórdís Anna Oddsdóttir hefur verið ráðin framkvæmdastjóri fjármála hjá 66°Norður.
Þórdís Anna Oddsdóttir hefur verið ráðin framkvæmdastjóri fjármála hjá 66°Norður. 66°Norður

Þórdís Anna Oddsdóttir hefur verið ráðin framkvæmdastjóri fjármála hjá 66°Norður og hefur þegar hafið störf. 

Í fréttatilkynningu þess efnis segir að hún komi til 66°Norður frá Landsvirkjun þar sem hún hafi starfað sem forstöðumaður fjárstýringar síðan í árslok 2021. Fyrir það hafi  Þórdís Anna starfað í fyrirtækjaráðgjöf Kviku banka og þar áður hjá Icelandair sem forstöðumaður tekjustýringar hjá flugfélaginu.

Þórdís er með MS gráðu í iðnaðarverkfræði frá Georgia Institute of Technology í Atlanta, Bandaríkjunum og BS gráðu í vélaverkfræði frá Háskóla Íslands. Hún hefur einnig lokið prófi í verðbréfaviðskiptum.

„Það eru virkilega spennandi tímar fram undan hjá 66°Norður og ógrynni af tækifærum. Ég hlakka til að taka þátt í áframhaldandi vexti félagsins í hópi úrvals samstarfsfólks,“ segir er haft eftir Þórdísi Önnu.

„Það er ánægjuefni að fá Þórdísi í stjórnendateymi félagsins en hún býr yfir mikilli reynslu af fjármálamörkuðum, bæði hér heima og erlendis, sem mun nýtast vel við efl­ingu fyr­ir­tæk­is­ins á alþjóðleg­um mörkuðum á komandi árum,“ er haft eftir Helga Rúnari Óskarssyni, forstjóra 66°Norður.





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×