Íslenski boltinn

Stjarnan riftir og Haraldur án fé­lags

Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar
Haraldur Björnsson í leik með Stjörnunni.
Haraldur Björnsson í leik með Stjörnunni. Vísir/Hulda Margrét

Markvörðurinn Haraldur Björnsson er samningslaus eftir að samningi hans við Stjörnuna var rift.

Frá þessu er greint á Fótbolti.net en þar segir að Haraldur, sem lék ekkert með Stjörnunni á síðustu leiktíð vegna meiðsla, sé nú að jafna sig eftir aðra aðgerð á mjöðm. Hinn 34 ára gamli Haraldur segist þó alls ekki vera hættur í fótbolta.

„Fótboltinn er það sem skemmtilegasta sem ég geri og hugmyndin með þessari aðgerð var alltaf að lengja ferilinn. Það hefur aldrei hvarflað að mér að hætta,“ segir Haraldur í viðtalinu á Fótbolti.net.

Haraldur er uppalinn hjá Val en hefur einnig spilað með Þrótti hér á landi. Þá hefur markvörðurinn spilað fyrir Sarpsborg 08, Fredrikstad FK, Strømmen IF og Lillestrøm í Noregi ásamt sænska félaginu Östersunds FK.

Einnig á hann að baki einn A-landsleik sem og 26 leiki fyrir yngri landslið Íslands.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×