Myrkur veruleiki ópíóðafaraldurs í Reykjavík sögusvið nýrrar bókar Forlagið 20. nóvember 2023 08:50 „Glæpasagan gefur manni oft góða innsýn í önnur samfélög og hvernig þau tikka." Jón Atli Jónasson sendir frá sér nýja bók. Gassi „Eitur hefst á líkfundi við heldur hrollvekjandi aðstæður í kvikmyndaveri. Ég þekki sæmilega til aðstæðna og fannst gaman að geta veitt lesendum dálitla innsýn í þann bransa. Það er styrkur glæpasögunnar - að geta bankað upp á hvar sem er í samfélaginu,“ segir leikskáldið og rithöfundurinn Jón Atli Jónasson en hann sendir frá sér aðra bókina um löggutvíeykið Dóru og Rado, í harðsoðnum og hörkuspennandi glæpasagnaflokki þar sem fjallað er á raunsannan hátt um myrkar hliðar Reykjavíkur samtímans.
Fyrri glæpasaga Jóns Atla, Brotin, sem kom út á síðasta ári, fékk afar jákvæðar viðtökur gagnrýnenda og vakti athygli erlendis. Þá eru í bígerð sjónvarpsþættir byggðir á sögunni. „Brotin vakti mikla forvitni, sérstaklega í Þýskalandi þar sem stærstu forlögin slógust um að fá réttinn á bókinni. Ég gerði samning við Fischer Verlag sem vildi tryggja sér tvær bækur. Þannig að það var ágætis hvatning til að skrifa aðra bók. Ég vinn að mestu leyti sem handritshöfundur. Ég hafði verið að vinna við þróun áað ýmsum glæpaseríum erlendis og svo skrifaði ég útvarpsleikrit um Guðmundar- og Geirfinnsmálið. Ég byrjaði að þreifa mig áfram með að skrifa glæpasögu og fljótlega varð ekki aftur snúið,“ segir Jón Atli. Óvenjulegt tvíeyki Dóra og Rado eru óvenjulegar og eftirminnilegar söguhetjur. Rado er sonur serbneskra innflytjenda sem hefur alist upp við erfiðar aðstæður í Árbænum en unnið sig upp í löggunni með dugnaði og heiðarleika. Dóra glímir við heilaskaða eftir voðaskot og er bæði sérkennileg í háttum og óútreiknanleg. En saman eru þau feiknasterkt teymi, drifin áfram af þrjósku, innsæi og brennandi réttlætiskennd – þótt ekki fari þau alltaf hefðbundnar leiðir. „Dóra og Rado eru bæði persónur sem eru og hafa lent utangarðs í ákveðnum skilningi. Ég legg mikið upp úr persónusköpun og það eru oftast persónurnar í mínum bókum sem drífa atburðarásina áfram.“ Í sögunni standa tökur á erlendum sjónvarpsþáttum sem hæst í kvikmyndaverinu í Gufunesi þegar illa farið lík finnst innan í leikmyndinni. Hinn látni reynist vera sambýlismaður Elliða, yfirmanns rannsóknardeildar lögreglunnar, sem setur málið umsvifalaust í hendurnar á þeim sem hann treystir best: Utangarðslöggunum Dóru og Rado. Brátt verður ljóst að málið tengist nýjum og banvænum fentanýltöflum sem bráðliggur á að uppræta. Dóra og Rado leggja því upp í skuggalegt ferðalag um undirheima Reykjavíkur þar sem ópíóðar hafa gerbreytt landslaginu. En sjálf hafa þau sína djöfla að draga: Dóra berst við verkjalyfjafíkn og Rado á bágt með að hrista fortíðina af sér. Hrollvekjandi veruleiki ópíóða „Bæði Brotin og Eitur eiga það sameiginlegt að vera glæpasögur sem gerast í nútímanum og mér fannst þær þurfa að vera nálægt veruleikanum. Ég er duglegur í heimildavinnu og það má líkja því við rannsóknarblaðamennsku. Kannski fannst mér það lógískt eftir að hafa unnið sannsögulegt verk upp úr Guðmundar- og Geirfinnsmálinu sem er sannsögulegt. Í nýju bókinni nær það kannski hæstu hæðum þar sem ég er að skrifa sögu sem gerist í ópíóðafaraldrinum sem geysar hér á landi. Veruleikinn er svo hrollvekjandi að það þarf svo sem ekki að reiða sig mikið á skáldskapinn til að miðla honum.“ Skyggnist inn í samfélagið gegnum glæpasögur „Ég les mikið og hef alltaf gert. Það var mikið lesið á mínu heimili þegar ég var að alast upp og mér líður eiginlega best þegar ég er umkringdur bókum. Síðustu ár hef ég lesið mikið af glæpasögum og legg mig eftir því að lesa glæpasögur frá fjarlægum löndum. Brasilíu, Suður Kóreu og Japan t.d. Glæpasagan gefur manni oft góða innsýni í önnur samfélög og hvernig þau tikka. Bækur eru besta jólagjöfin. Ég bæði gef og bið um bækur í jólagjöf,“ segir Jón Atli.
Bókmenntir Bókaútgáfa Menning Jól Mest lesið „Eru endaþarmsmök hættuleg?“ Lífið Inga Lind selur íbúð við Valshlíð Lífið Magnús Scheving og Hrefna glæsileg á opnun Sjálands Lífið Fann fíkniefnin strax Lífið Falleg tónlist GDRN hljómaði ekki nógu vel Gagnrýni Jón og Hafdís festu kaup á einbýli með bátaskýli Lífið Þessi lönd gáfu Íslandi stigin þrjú Lífið Fleiri sniðgengu en ekki Lífið Fá í fyrsta sinn að klæðast strigaskóm Tíska og hönnun Nóbelsverðlaunahafinn Alice Munro er látin Menning Fleiri fréttir Bill Barton kemur í Augað í Kringlunni Sumar að hætti Múmínálfanna lokkar þig út í góða veðrið Einstakar húðmeðferðir sem auka heilbrigði húðarinnar „Okkar sérsvið liggur í sætindum“ – mæðradagsbombur frá 17 sortum Glæsileg dagskrá á Þjónustudegi Toyota á laugardag Umfram allt að húsgögnin þoli íslenskt veðurfar Nýi Draumurinn slær í gegn Dáleiðsludagurinn 11. maí Er hægt að nota of mikið af sólarvörn? Taktu þátt í Ford Fantasy leik Bestu deildar karla Ný vörulína lagar litabletti í húð The House of Beauty fagna sex ára afmæli með látum Taktu þátt í spennandi vorleik á Vísi Fermingargjöf sem lifir um ókomin ár 10 ár af matargleði: Eldum rétt býður í milljón króna ferðalag ILVA tilnefnt til hönnunarverðlauna Bo Bedre Karlmannsnærbuxurnar sem eru að gera allt vitlaust Taktu þátt í skemmtilegum sumarleik! Metum hvort við viljum breyta góðri sögu með sannleika Virkilega spennandi lokamót framundan Hanna draumareitinn fyrir sumarið Fyrstur Íslendinga að keppa í SkyRunning World Series DONE gæinn, markaðsmaður ársins? Brúðkaupsdansinn er einn af hápunktum brúðkaupsins Ný viðbót frá NIVEA dregur úr sýnileika húðslita og litabletta Sætu sænsku vörurnar sem farnar eru á flug um allan heim „Probi Female er það eina sem hefur virkað fyrir mig“ SENSAI í Hagkaup í 30 ár Minnkar kláða og ertingu í húð barnsins „Hárið á mér síkkar bókstaflega á hraða ljóssins“ Sjá meira