Lífið samstarf

„Hárið á mér síkkar bók­staf­lega á hraða ljóssins“

Artasan
Guðrún Veiga var komin með skallabletti sem höfðu mikil áhrif á sjálfstraust og andlega líðan.
Guðrún Veiga var komin með skallabletti sem höfðu mikil áhrif á sjálfstraust og andlega líðan.

Guðrún Veiga hefur verið að notast við Hair Volume línuna frá New Nordic en eftir einungis 3 mánuði var kominn sjáanlegur munur og hárið allt annað.

Með því að nota náttúrulegar jurta sameindir er hægt að virkja lífsferla og virkni í húð okkar og hárfrumum með ótrúlegum árangri. New Nordic hárlínan er einstök en notkun fæðubótarefna sem hafa jákvæð áhrif á umfang hárs samhliða hárvörum sem innihalda sömu virku jurtarefnin er einstaklega áhrifarík leið til þess að næra og endurbæta hárið.

Hafði verið að glíma við hárlos síðan 16 ára

„Áður en ég byrjaði að nota Hair Volume var ég í raun bara varla með hárvöxt, ég var bókstaflega að missa hárið. Skallablettir voru komnir til sögunnar sem höfðu mikil áhrif á sjálfstraustið og andlega líðan. Ég var búin að vera glíma við hárlosímabil sem virtust endurtaka sig árlega og hárið náði sér aldrei almennilega á strik á milli tímabila. Ég var búin að fara til læknis og engin haldbær skýring fannst á þessum mikla hármissi, en ég hafði verið að glíma við hárlos síðan ég var 16 ára.

Hárið á mér var gjöreyðilagt þegar einhver efni voru vitlaust blönduð og skellt í hausinn á mér.

Ég varð fyrst vör við umræðu um Hair Volume á bæði Instagram og Facebook í kringum árin 2018-2019 en ég byrjaði að nota vörurnar fyrir tveimur árum. Ég hugsaði með mér að það gæti varla skaðað að prófa enn einn varninginn sem lofaði mér bót og betrun.“

Hair Volume ™ töflurnar innihalda náttúrulega vaxtarvakann Procyanidin B2 sem unnin er úr eplum.

Hefur ekki farið í hárlos í yfir 20 mánuði með Hair Volume

Guðrún Veiga notar Hair Volume töflurnar en tekur stundum mánuð og mánuð þar sem hún skiptir í hlaupið. „Það er bara svo agalega gómsætt. Ég tek töflurnar alltaf inn með lyfjunum mínum áður en ég fer að sofa á kvöldin en þá er engin hætta á að ég gleymi þeim. Ég held að ég geti staðfest að ég hafi ekki misst úr degi síðan ég byrjaði að taka þetta inn í maí 2022. Einnig nota ég sjampóið, hárnæringuna og serumið. Ég hef prófað ýmislegt sem er tileinkað hárlosi og hárvexti, auðvitað hef ég fundið eitthvað sem virkar í skamman tíma og annað sem virkar en gerir hárið á mér á endanum eins og hey því að ég er svo krullhærð.

Með Hair Volume hef ég ekki farið í hárlos í yfir 20 mánuði og það er algjört met.

Munurinn á hárinu var orðinn sjáanlegur eftir svona þrjá mánuði en daginn í dag er ég ekki lengur með skallabletti, hárið á mér er mun þéttara og ég er alltaf með fullan haus af nýjum hárum. Eins síkkar hárið á mér bókstaflega á hraða ljóssins, sem það svo sannarlega gerði ekki áður fyrr,“ segir Guðrún Veiga sem mælir hiklaust með Hair Volume fyrir öll þau sem upplifa hvers konar hárlos.

Daginn í dag er ég ekki lengur með skallabletti, hárið á mér er mun þéttara og ég er alltaf með fullan haus af nýjum hárum.
Volume hlaupin henta svo einstaklega vel fyrir öll þau sem ekki vilja gleypa töflur. Hlaupin eru sérlega bragðgóð.

Heilbrigðara hár og hársvörður með New Nordic

Hair Volume fæst bæði í töflum og hlaupi eins og fram hefur komið en Guðrún Veiga notast við bæði til skiptis. Töflurnar innihalda náttúrulega vaxtarvakann Procyanidin B2 sem unnin er úr eplum. Töflurnar næra rætur hársins með bíótíni sem hvetur hárvöxt og eykur umfang hársins, kopar sem hjálpar við að viðhalda hárlit ásamt amínósýruna L-cysteine sem kemur í veg fyrir hárþurrk og viðheldur áferð og þykkt.

Að auki inniheldur varan eplasafa, sink og þykkni úr hirsi sem hefur það að markmiði að gera það líflegra og fallegra. Hair Volume hlaupin henta svo einstaklega vel fyrir öll þau sem ekki vilja gleypa töflur. Hlaupin eru sérlega bragðgóð en þau innihalda eplaþykkni í bland við hirsi, piparrót, bíótín, pantótensýru og sink. Bíótín og sink stuðla að eðlilegu viðhaldi hárs. Þú velur hvað þér finnst henta betur, töflur eða gómsæt hlaup með eplabragði.

Hair Volume hárlínan er einstök en notkun fæðubótarefna sem hafa jákvæð áhrif á umfang hárs samhliða hárvörum sem innihalda sömu virku jurtarefnin er einstaklega áhrifarík leið til þess að næra og endurbæta hárið.

Þrenna sem virkar!

Hair Volume hárlínan hefur slegið í gegn en ekki er það að ástæðulausu. Sjampóið hefur það að markmiði að næra hárið vel, veita fyllingu og viðhalda því mjúku og glansandi. Sjampóið inniheldur hvorki SLS/SLES súlfat né silíkon, heldur er einungis notast við náttúrulegar olíur til að gefa hárinu silkimjúka áferð. Varan inniheldur eplaedik sem hefur þann einstaka eiginleika að örva hársvörðinn, djúphreinsa hárið og endurheimta pH-gildi án þess að hárið þurrkist upp.

Hárnæringin er svo frábær viðbót beint eftir sjampóið en næringin inniheldur epli, hirsi og amínósýrur sem stuðla að því að endurbæta hárið ásamt því að veita því silkimjúka og glansandi áferð.

Shine Serum er loka skrefið í átt að frábæru hári en droparnir sjá um að endurheimta og næra hárstrengina ásamt því að auka enn frekar við glans og fyllingu hársins. Ekki skemmir svo fyrir dýrindis ilmur af seruminu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×