Lífið samstarf

Taktu þátt í BabyS­hower­leik Vísis

BabyShowerleikur Vísis

Komdu óléttu eiginkonunni, vinkonunni, systurinni, frænkunni eða mágkonunni á óvart og dúndraðu upp óvæntu og skemmtilegu BabyShower partýi.

Það er kærkomin tilbreyting fyrir þreyttar óléttar konur og um leið eftirminnileg stund sem mun án efa lifa í minningarbankanum um ókomin ár.

Fjöldi fyrirtækja gefur fallegar og nytsamlegar gjafir. Skráðu þig til leiks hér fyrir neðan og þú er komin(n) í pottinn. Hægt er að skoða vinningana fyrir neðan skráninguna. Skráningu lýkur á miðnætti sunnudaginn 14. apríl.

Nathan & Olsen

Nathan & Olsen gefur kassa af Libero vörum sem eru bráð nauðsynlegar fyrstu mánuðina í lífi sérhvers barns. Libero bleyjur hafa verið framleiddar í yfir 50 ár og á þeim tíma hefur stöðug þróunarvinna átt sér stað til að mæta þörfum viðskiptavina okkar og bjóða þeim bestu bleyjur sem völ er á. Allar Libero vörur eru ofnæmisprófaðar, ilmefnalausar, Svansmerktar og vottaðar af norrænu Astma- & ofnæmissamtökunum. Kassinn inniheldur eftirfarandi vörur:

  • Libero Touch Newborn 1 (2-5 kg.)
  • Libero Touch Newborn 2 (3-6 kg.)
  • Libero blautþurrkur * 12
  • Libero bleyjupokar * 8
  • Libero Zinc krem * 8
  • Libero skiptiundirlag * 10

Lyfja

Naif eru húðvörur fyrir ungbörn og börn á öllum aldri. Þær innihalda eingöngu náttúruleg innihaldsefni. Loforð Naif er „við munum aldrei selja þér eitthvað sem við notum ekki á okkar eigin börn“. Vörurnar eru bæði góðar fyrir húðina og valda engum umhverfisskaða.

Innihaldsefnin í Naif eru heilnæmar olíur eins og t.d. kókos-, hörfræ- og avókadóolíur ásamt tómat extract og sinkoxíð. Allar vörurnar eru vegan og ekki prófaðar á dýrum. Naif fæst í völdum verslunum Lyfju.

Verðmæti gjafanna er um 25.000 kr.

Steindal

Steindal gefur tvo kassa af Töst sem er 100% náttúrlegt óáfengt freyðandi hvítt te og er fullkomið til þess að fagna góðu Babyshower eða fallegum stundum. Um er að ræða Töst Original og Töst Rosé að verðmæti 26.000 kr.

Dún & fiður

Dún & fiður gefur ungbarnasæng og kodda og líka damask sængurverasett að verðmæti 41.300 kr.

Taubleyjur.is

Taubleyjur.is gefa Avionaut Cosmo ungbarnastól og base IQ 2.0 C sem fylgir með. Ungbarnastóllinn passar börnum frá 0-13 kg. og 40-87 cm. og er bæði hægt að smella í IQ 2.0 C base og festa með belti. Stóllinn er mjög léttur, aðeins 3,2 kg. og passar á universal bílstólafestingar.

Ungbarnastóllinn er auk þess með AGR vottun (þýsk gæðavottun fyrir bakheilsu) sem staðfestir að stóllinn styður afar vel við hrygg barnsins. Sólskyggnið verndar barnið fyrir UV geislum sólarinnar, ásamt veðri og vindum. Vottun: ECE R-129 og i-Size.

17 sortir

17 sortir gefa köku og 50 bita eftirréttaturn. Verðmæti vinninga er 43.000 kr.

Confetti Sisters

Confetti Sisters gefa Babyshower veisluvörur að eigin vali að andvirði 25.000 kr. Þessar vörur gera veisluna ennþá flottari og skemmtilegri en fyrir upphæðina er hægt að skipuleggja súper flott veisla. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×