Íslenski boltinn

Arnar sagður í við­ræðum við Norrköping

Valur Páll Eiríksson skrifar
Arnar Gunnlaugsson gæti verið á leið til Svíþjóðar. Hann hefur gert Víkinga tvisvar sinnum að Íslandsmeisturum og fjórum sinnum að bikarmeisturum.
Arnar Gunnlaugsson gæti verið á leið til Svíþjóðar. Hann hefur gert Víkinga tvisvar sinnum að Íslandsmeisturum og fjórum sinnum að bikarmeisturum. Vísir/Hulda Margrét

Arnar Gunnlaugsson, þjálfari tvöfaldra meistara Víkings, er sagður í viðræðum við Norrköping í Svíþjóð um að taka við þjálfarataumunum hjá félaginu.

Fótbolti.net greinir frá og hefur eftir sínum heimildum. Arnar sé talinn góður kandídat til að leysa Glen Riddersholm af hólmi. Sá var rekinn frá félaginu eftir að sænsku úrvalsdeildinni lauk um helgina.

Arnar hefur verið þjálfari Víkings frá árinu 2018 og hefur félagið náð sögulega góðum árangri undir hans stjórn. Það hefur unnið tvo Íslandsmeistaratitla og fjóra bikartitla á þeim fimm árum.

Fari svo að Arnar fari til Svíþjóðar yrði hann annar þjálfarinn til að fara úr Bestu deildinni til að taka við erlendu liði eftir nýafstaðna leiktíð. Óskar Hrafn Þorvaldsson yfirgaf Breiðablik til að taka við Haugesund í Noregi, sem hann tekur þó ekki við fyrr en leiktíðinni í Noregi er lokið.

Norrköping er mikið Íslendingafélag og fjölmargir Íslendingar hafa leikið fyrir liðið undanfarin ár. Þrír íslenskir leikmenn eru á mála hjá félaginu; Arnór Ingvi Traustason, Ísak Andri Sigurgeirsson og Andri Lucas Guðjohnsen. Sá síðastnefndi er á láni hjá Lyngby í Danmörku.

Ari Freyr Skúlason hefur verið leikmaður liðsins síðustu ár en lagði skóna á hilluna eftir lokaumferðina um helgina og hefur þegið starf í þjálfarateymi Norrköping.

Norrköping endaði í níunda sæti deildarinnar á nýliðinni leiktíð.

Taki Arnar við Norrköping yrði það hans fyrsta þjálfarastarf erlendis. Hann hefur þjálfað ÍA auk Víkings hér heima og einnig verið aðstoðarþjálfari hjá KR. Á leikmannaferli sínum lék hann víða um Evrópu; í Hollandi, Þýskalandi, Frakklandi og á Bretlandi en þó aldrei í Skandinavíu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×