Íslenski boltinn

Guðni býður sig fram til for­manns KSÍ

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Guðni Bergsson var formaður KSÍ á árunum 2017-21.
Guðni Bergsson var formaður KSÍ á árunum 2017-21. vísir/daníel

Guðni Bergsson hefur ákveðið að bjóða sig fram til formanns Knattspyrnusambands Íslands.

Vanda Sigurgeirsdóttir ætlar að láta af störfum sem formaður KSÍ þegar kjörtímabili hennar lýkur á næsta ári.

Kosið verður um næsta formann KSÍ á ársþingi sambandsins á Ísafirði í febrúar 2024. Guðni vildi ekki tjá sig um framboðið að svo stöddu þegar eftir því var leitað. Hann vísaði til fréttatilkynningar sem sjá má í heild neðst í fréttinni.

Guðni var áður formaður KSÍ á árunum 2017-21. Hann sagði af sér sem formaður í ágúst 2021 þegar KSÍ var harðlega gagnrýnt fyrir að hylma yfir með ofbeldisbrotum leikmanna karlalandsliðsins.

Í yfirlýsingu sem Guðni sendi fjölmiðlum síðdegis segir að hann hafi ákveðið að bjóða sig fram eftir að hafa fengið fjölda áskorana og hvatningu úr fótboltahreyfingunni. Hann vill halda áfram að leggja sitt „af mörkum til þess að vinna að því að gera gott starf KSÍ og aðildarfélaganna enn betra.“

Framboðsyfirlýsing Guðna Bergssonar

Yfirlýsing um framboð til formanns KSÍ

Eftir fjölda áskorana og hvatningu frá góðu fólki í knattspyrnuhreyfingunni hef ég ákveðið að bjóða mig fram sem formaður KSÍ á ársþingi sambandsins sem fram fer í lok febrúar á næsta ári.

Fótboltinn hefur verið í stóru hlutverki allt mitt líf og ég brenn fyrir íþróttina. Ég vil halda áfram að leggja mitt af mörkum til þess að vinna að því að gera gott starf KSÍ og aðildarfélaganna enn betra.

Verkefnin framundan eru mörg og fjölbreytt. Í þeim verkefnunum sem öðrum skiptir máli að við vinnum öll í saman að framgangi fótboltans í landinu. Fótboltinn samanstendur af mörgum þáttum en er ein öflug heild sem stöðugt þarf að huga að.

Ég mun fara betur yfir helstu stefnumál mín og áherslur þegar nær dregur ársþingi.

Með fótboltakveðju,

Guðni Bergsson

Guðni var fyrst kjörinn formaður KSÍ í febrúar 2017. Þar hafði hann betur gegn Birni Einarssyni í formannsslag. Björn hefur einnig verið orðaður við framboð til formanns á næsta ári.

Guðni var svo endurkjörinn formaður KSÍ 2019. Þar sigraði hann Geir Þorsteinsson, fyrrverandi formann og framkvæmdastjóra KSÍ.

Guðni, sem er 58 ára, átti afar farsælan feril sem leikmaður. Hann lék lengi á Englandi með Tottenham og Bolton Wanderes og spilaði áttatíu landsleiki.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×