Lífið

Afmælisdagatöl úr parketi slá í gegn í Hvera­gerði

Magnús Hlynur Hreiðarsson skrifar
Hafsteinn Thor, sem hefur meira en nóg að gera við að framleiða afmælisdagatölin sín úr parketi enda vinsæl jólagjöf.
Hafsteinn Thor, sem hefur meira en nóg að gera við að framleiða afmælisdagatölin sín úr parketi enda vinsæl jólagjöf. Magnús Hlynur Hreiðarsson

Listamaður í Hveragerði situr sveittur við alla daga langt fram á nótt við að útbúa afmælisdagatöl úr parketi en hann segir vinsældir dagatalanna vera að slá öll met núna í desember. Hann breytir líka gömlum vínylplötum í listaverk.

Hér erum við að tala um listamanninn Hafstein Thor hjá Laufskógar Handverk, sem er með vinnuaðstöðuna heima hjá sér þar sem hann situr við alla daga og fram á nótt þessa dagana við að útbúa afmælisdagatal með hjörtum.

„Þá gerir maður svona spjald og hjörtu með nöfnum og dagsetningum og hengir svo á og þá blasir þetta svona fallega við á veggjum heimilanna,“ segir Hafsteinn þegar hann var beðin um að lýsa dagatalinu.

Úr hverju vinnu þú þetta?

„Heyrðu, ég var að vinna þetta úr krossvið lengi vel en svo ákváðu þeir að hækka verðið á krossvið svo svakalega að ég ákvað að kaupa parket þannig að ég er að vinna þetta úr parketi í dag. Það kemur svona svakalega vel út og er fallegt efni.“

Hafsteinn brennir nöfn afmælisbarna á hjörtun og svo er þeim raðað samviskusamlega á parketplötuna eftir því hvenær viðkomandi á afmæli. Svo þegar nýr einstaklingur kemur í fjölskylduna þá útbýr Hafsteinn nýtt hjarta.

Afmælisdagatal, sem Hafsteinn var að klára og mun fara undir jólatréð á aðfangadagskvöld hjá einhverjum heppnum, sem fær það í jólagjöf.Magnús Hlynur Hreiðarsson

Og Hafsteinn gerir önnur fjölbreytt verkefni, hann hefur til dæmis mjög gaman af því að breyta gömlum vínylplötum í listaverk.

„Já, það hefur verið að koma skemmtilega út en ég hef verið að búa til veggljós úr vínylplötum.“

Og svo útbýr Hafsteinn jólaóróa með il barnsins í raunstærð.

„Það er svolítið fallegt að geta tekið fótspor og smellt því á jólaóróa,“ segir Hafsteinn.

Hér er síða Laufskógar handverk






Fleiri fréttir

Sjá meira


×