Innlent

Býður öllum grunn­skóla­börnum á fund

Árni Sæberg skrifar
Dagur heldur ansi fjölmennan fund á morgun.
Dagur heldur ansi fjölmennan fund á morgun. Vísir/arnar

Borgarstjóri hefur boðað alla unglinga í grunnskólum Reykjavíkur á fund til að ræða mögulega seinkun á skólabyrjun á unglingastigi.

Í fréttatilkynningu um fundinn segir að  hann hefjist klukkan 10:15, á morgun föstudag.

Fundurinn verði haldinn í gegnum fjarfundarbúnað og ásamt Degi B. Eggertssyni borgarstjóra verði Dr. Erla Björnsdóttir, sálfræðingur og sérfræðingur í svefni og Ólöf Kristín Sívertsen frá fagskrifstofu grunnskóla í Reykjavíkurborg á fundinum. 

Nemendurnir sitji fundinn í sínum kennslustofum og fundurinn verði gagnvirkur þar sem unglingarnir svara spurningum um efni fundarins í snjalltækjum. Eins verði hægt að koma á framfæri spurningum og athugasemdum í gegnum kennarana sem koma þeim áfram til pallborðsins.

Til skoðunar um nokkurt skeið að leyfa börnunum að sofa út

Seinkun skólabyrjunar hafi verið til skoðunar um nokkurt skeið og þær tilraunir sem hafa verið gerðar gefi góða raun. Í haust hafi starfshópur verið að störfum við að móta tillögur að fyrirkomulagi seinkunar á skólabyrjun og í starfshópnum séu meðal annarra þrír fulltrúar ungmenna og það hafi reynst einstaklega vel.

Ráðlagður svefntími hjá unglingum á aldrinum fjórtán til sautján ára sé átta til tíu klukkustundir á sólarhring. Þrátt fyrir aukna vitundarvakningu um mikilvægi svefns þá sofi margir unglingar of lítið og það að það fjölgi sífellt í þeim hópi á milli ára sé mikið áhyggjuefni. Á sama tíma og fleiri unglingar sofa of lítið sýni rannsóknir að andleg líðan þeirra fer versnandi en þekkt séu tengsl svefns og andlegrar heilsu.

Ekki gengið á skipulagt skólastarf

Í tilkynningunni segir að niðurstöður fundarins verði nýttar til að útfæra seinkun á upphafi skóladagsins. Til hliðsjónar verði rannsóknir um áhrif þessa á svefn unglinga sem þurfi að útfæra í takt við Menntastefnu Reykjavíkurborgar, Látum draumana rætast, svo breytingarnar styðji við nám, lýðheilsu og góðan skólabrag.

Hugað verði að því að ekki verði gengið á skipulagt skólastarf eða ákvæði í námskrá. Það sé til dæmis hægt að gera með nánara samspili skóla- og frístundastarfs og þeirra sem veita frístundaþjónustu eins og íþróttafélög. Eins þurfi að huga að því hvernig breytingarnar geti komið til móts við óskir skólastjórnenda og starfsfólks um undirbúningstíma fyrir eða eftir skipulagðan skóladag.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×