Skoðun

Lyfja­með­ferð í skaðaminnkun

Bjarni Össurarson Rafnar og Valgerður Rúnarsdóttir skrifa

Tilefni þessara skrifa er umræða sem hefur átt sér stað vegna ávísana sjálfstætt starfandi læknis á morfíntöflum í nafni skaðaminnkunar, til handa fólks sem sprautar í æð.

Í BNA hefur geisað ópíóíðafaraldur síðastliðin 20 ár. Þáttur lækna og lyfjafyrirtækja í honum er öllum ljós. Á Íslandi hefur misnotkun ópíóíða aukist mikið á síðustu árum og jafnvel er talað um faraldur. Ávísanir lækna á ópíóíðum á Íslandi hefur aukist á síðustu 10 árum. Tölur SÁÁ sýna mikla fjölgun einstaklinga sem eiga við ópíóíðavanda að stríða. Að lokum hefur dauðsföllum vegna ópíóíða fjölgað. Allir eru sammála um að misnotkun ópíóíða er alvarlegt vandamál sem þarf að bregðast við.

Miklvægt er að einstaklingar sem vilja taka á ópíóíðavanda hafi greiðan aðgang að meðferð. Á hverjum tíma er hins vegar hópur sem ekki getur eða vill hætta allri neyslu. Fyrir þennan hóp er miklvægt að bjóða upp á svo kallaða skaðaminnkun. Í hugtakinu felst að reynt er af bestu getu að minnka skaðann af neyslunni og standa að öðru leyti með einstaklingnum og hans réttindum.

Beinn skaði á líkamlega heilsu einstaklinga sem sprauta í æð er f.o.f. tvenns konar. Fyrst er sprautunotkunin sjálf sem ber með sér hættu á alvarlegum bakteríusýkingum (t.d. sýking á hjartalokum) og veirusýkingum sem smitast milli manna með blóði (HIV og lifrarbólga). Síðan er hættan af lyfjaflokknum sjálfum sem í tilfelli ópíóíða er dauði við ofskammt.

Að skrifa morfíntöflur á stofu tekur ekki á neinum af þessum þáttum. Fólk sprautar sig áfram og er áfram í hættu hvað varðar sýkingar og ofskammt. Vissulega veit neytandinn hversu mikið magn er í hverri töflu sem gæti minnkað hættu á ofskammti. Hins vegar eru töflur ekki hannaðar til að sprauta þeim muldum beint í æð, í þeim eru margs konar aukaefni sem geta haft skaðleg áhrif á ýmiss líffæri.

Grunngildi heilbrigðisstétta er að valda ekki skaða. Þess vegna verða allar meðferðir og inngrip að hafa traustan vísindalegan grunn. Engin vísindaleg gögn liggja fyrir sem sýna fram á að ávísun morfíns á töfluformi á stofu minnki skaða hjá fólki sem sprautar í æð. Það er enginn eðlismunur á að ávísa morfíntöflum eða OxyContin, bæði efnin eru ópíóíðar sem valda dauða í ofskammti. Hver er ábyrgð læknis ef einstaklingur í fíknivanda fær hjá honum ávísað morfíntöflum og deyr síðan úr ofskammti? Eða þá þegar þriðji aðili deyr sem keypti efnið af skjólstæðingi læknisins?

Nú vill svo til að það er til mjög góð meðferð við ópíóíðafíkn. Hún byggir á áratuga rannsóknum sem hafa sýnt frábæran árangur. Meðferðin kallast viðhaldsmeðferð og byggir á reglulegum stuðningi fagaðila ásamt lyfjagjöf. Þessi meðferð er veitt hjá SÁÁ og í minna mæli á fíknigeðdeild Landspítala. Upprunalega var lyfið methadone notað en síðustu 20 ár hefur lyfið buprenorphine (Suboxoneâ, Buvidalâ) tekið við. Ástæðan er að þetta lyf er öflugt, öruggt og hreinlega ver fólk gegn ofskammti. Ekki er hægt að sprauta því í æð og það veldur ekki dauða í ofskammti. Í seinni tíð er buprenorphine í vaxandi notkun hjá þeim sem stunda skaðaminnkandi meðferð þ.e.s. þröskuldur fyrir að ávísa þessu örugga lyfi hefur sífellt lækkað. Ef styðja á enn frekar skaðaminnkun fyrir fólk sem sprautar ópíóíðum í æð, ætti að styðja við ráðlagða lyfjameðferð (viðhaldsmeðferð) sem nú er veitt i vel skilgreindu og faglegu umhverfi og auðvelda aðgengi að henni t.d. í nær umhverfi með faglegri skaðaminnkun.

Lyfjagjöf er einungis einn af mörgum þáttum skaðaminnkunar. Skaðaminnkun er mikilvæg og er í dag stunduð af mörgum aðilum á Íslandi t.d. Frú Ragnheiði, SÁÁ, geðdeild og smitsjúkdómadeild Lanspítala og VOR teymi Reykavíkurborgar. Stefnumörkun í þessum málaflokki stendur nú yfir í Heilbrigðisráðuneytinu.

Bjarni Össurarson Rafnar er geðlæknir á fíknigeðdeild Landspítala og Valgerður Rúnarsdóttir er framkvæmdastjóri lækninga hjá SÁÁ.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Skoðun

Skoðun

Saman gegn ríkisofbeldi

Vilhjálmur Yngvi Hjálmarsson,Örlygur Steinar Arnaldsson,Sigurhjörtur Pálmason,Simon Valentin Hirt,Kristbjörg Arna E. Þorvaldsdóttir,Ari Logn,Margrét Rut Eddudóttir skrifar

Sjá meira


×