Innlent

Hafi verið þekktur á Akra­nesi fyrir að of­sækja konur

Jón Þór Stefánsson skrifar
Árásin sem málið varðar átti sér stað á Akranesi í mars í fyrra. Myndin er úr safni.
Árásin sem málið varðar átti sér stað á Akranesi í mars í fyrra. Myndin er úr safni. Vísir/Vilhelm

Héraðdómur Vesturlands dæmdi í dag í máli sem varðar líkamsárás sem átti sér stað í mars í fyrra á Akranesi. 

Dómurinn taldi sannað að maður, sem var ákærður í málinu, hefði veitt brotaþola málsins, öðrum manni, eitt hnefahögg. Þó þótti ekki tilefni til að gefa honum refsingu.

Manninum var gefið að sök að ráðast gegn brotaþolanum með því að slá hann ítrekað í höfuð og bringu. Fyrir vikið hafi brotaþolinn hlotið skurð á hnakka, skurð á eyra, og verk í baki. Maðurinn neitaði sök og krafðist sýknu.

Reiður og pirraður á hrellihegðun

Fyrir dómi útskýrði maðurinn að brotaþolinn hefði hrellt eiginkonu hans og verið með þráhyggju gagnvart kærustu frænda hans. Maðurinn hafi verið orðinn reiður og pirraður á þessu og kvað hann „alla í bæjarfélaginu vita hver brotaþoli er og hann sé þekktur fyrir að ásækja konur.“

Svo virðist sem mennirnir hafi hist utandyra. Brotaþolinn segir að maðurinn hafi stigið úr bílnum sínum og spurt: „Er þetta ekki komið gott?“ og hann svarað: „Fyrst það er komið að þessu þá skulum við bara láta verða af þessu.“ 

Hann sagði átök þeirra á milli síðan hafa hafist, en sagðist óviss um hvor hafi átt fyrsta höggið. Jafnframt hélt hann því fram að hann hefði óttast um líf sitt.

Ólíkar lýsingar

Árásarmaðurinn vildi hins vegar meina að hann hafi spurt „hvort þetta væri ekki orðið gott“ en þá hafi brotaþolinn ráðist á hann með því að slá hann með steini í höfuðið. Sjálfur hafi hann reynt að ná honum af sér og síðan farið aftur upp í bíl og keyrt að sjúkrahúsinu.

Dómnum þótti ekki sannað að maðurinn hefði veist að brotaþolanum líkt og greint er frá í ákæru, en þó væri sannað, líkt og áður segir, að hann hafi veitt honum eitt hnefahögg.

Í dómi Héraðsdóms segir allt bendi til þess að árásarmaðurinn hafi farið á vettvang til að jafna sakir við brotaþolann. Fyrirætlanir hans hafi ekki raungerst þar sem þeir hafi ráðist á hvorn annan.

Refsing mannsins var látin falla niður og var hann sýknaður af bótakröfu brotaþola sem hljóðaði upp á eina milljón í skaða- og miskabætur.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×