Innlent

Axel Pétur og Dóri DNA mættir til leiks sem for­seta­fram­bjóð­endur

Jakob Bjarnar skrifar
Dóri DNA og Axel Pétur vita að það þarf að koma til frumkvæði og þeir hafa þergar gefið það út að þeir ætli að sækjast eftir því að verða forsetar íslenska lýðveldisins. Fleiri eiga eflaust eftir að bætast í hópinn.
Dóri DNA og Axel Pétur vita að það þarf að koma til frumkvæði og þeir hafa þergar gefið það út að þeir ætli að sækjast eftir því að verða forsetar íslenska lýðveldisins. Fleiri eiga eflaust eftir að bætast í hópinn.

Tveir hafa þegar riðið fram á völlinn og lýst yfir framboði til forseta Íslands. Guðni Th. Jóhannesson lýsti því yfir að hann hyggðist ekki sækjast eftir embættinu og þessir tveir biðu ekki boðanna.

Axel Pétur Axelsson hefur verið þekktur fyrir efahyggju sína, hann efast um hvað eina og hafa sumir lýst honum sem samsæriskenningasmiði. Hann hefur ákveðið að bjóða sig aftur fram til forseta Íslands 2024 en það gerði hann einnig 2020. Þetta kemur í 20 mínútna ræðu sem hann birtir á Brotkasti þar sem hann segist hafa ákveðið að hafa boðið sig fram til „forseta lýgræðis ísland“. Hann segist ætla að nýta sér betur reynsluna frá tilraun hans 2020.

Annar sem hefur gefið það út að hann vilji verða forseti lýðveldisins er Halldór Laxness eða Dóri DNA, skemmtikraftur. Hans helsti vettvangur á samfélagsmiðlum er X áður Twitter. Hann hóf leikinn með því að fiska, „500 like og ég fer í forsetaframboð. Án djóks.“ Það vafðist ekki fyrir honum að fá það og tilkynnti hann um framboð sitt klukkustund síðar:

„Hér með tilkynni ég framboð mitt til forseta Íslands. Montnar kerlingar úr viðskiptalífinu beware.“

Halldór Laxness hefur þegar lýst eftir kosningastjóra sem og fjárhagslegum bakhjörlum. „Kosningaherferðin verður keyrð á svona 60% Andra Snæs dæmi og 40% funked out gangster twist.“ Þá ætlar Dóri að setja upp bekkpressu og litla box-aðstöðu á Bessastöðum.

Mörgum kom í opna skjöldu að Guðni skyldi ekki láta hafa sig í eitt kjörtímabil til en nú er sem sagt búið að lyfta lokinu af þessu gríni, trúðasýningu, en kosið verður 1. júní.


Tengdar fréttir

Hjónin hafi á­kveðið að verja lífinu á annan hátt

Ólafur Þ. Harðarson, stjórnmálafræðingur og prófessor emiritus, segir að ákvörðun Guðna Th. Jóhannessonar forseta að sækjast ekki eftir endurkjöri hafi komið sér ákaflega mikið á óvart. „Ég, eins og fleiri, átti von á því að hann myndi taka eitt kjörtímabil í viðbót þannig að þetta yrðu samtals tólf ár.“



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×