Tíska og hönnun

„Klæðist því sem mér finnst flott án þess að eltast við tískuna“

Dóra Júlía Agnarsdóttir skrifar
Birta Ásmundsdóttir er viðmælandi í Tískutali.
Birta Ásmundsdóttir er viðmælandi í Tískutali. Aðsend

Dansarinn, heklarinn og listakonan Birta Ásmundsdóttir hefur bæði gaman að fjölbreytileika tískunnar og sameiningarkrafti hennar þegar fólk til dæmis klæðir sig eins. Hún elskar að blanda saman stílum og klæðist því sem henni finnst flott án þess að elta tískuna. Birta er viðmælandi í Tískutali.

Tískutal er fastur liður á Vísi þar sem rætt er við ólíka einstaklinga um þeirra persónulega stíl og hvernig tíska nýtist þeim í daglegu lífi. Klæðaburður er sannarlega fjölbreytt listform en við fáum að skyggnast inn í ólíka fataskápa og fræðast nánar um það merkilega tjáningarform sem tíska er fyrir hverjum og einum viðmælanda.

Birta segir skemmtilegt að sjá hve fjölbreytt tískan getur verið og sömuleiðis einsleit. Aðsend

Hvað finnst þér skemmtilegast við tískuna?

Hvað hún getur verið ótrúlega fjölbreytt en líka mjög einsleit. 

Það er ekkert sem mér finnst jafn skemmtilegt og að sjá þrjár stelpur labba saman í Kringlunni þar sem þær eru allar í eins Ugg's skóm og sömu peysunum. Það er svo krúttlegt.

Hver er uppáhalds flíkin þín og af hverju?

Án þess að reyna að hljóma sjálfhverf þá verð ég að segja bara öll föt sem ég hef heklað sjálf á mig. 

Það jafnast ekkert á við það að klæðast einhverju sem þú bjóst sjálf til í höndunum.
Birta í peysu sem hún heklaði.Aðsend

Eyðiru miklum tíma í að velja föt hverju sinni?

Sko það fer eftir ýmsu. Það getur tekið mig mjög langan tíma en ef ég veit að ég er að fara eitthvað fínt á næstunni þá byrja ég strax að hugsa um í hverju ég ætla að vera. Það er þá alltaf svona í undirmeðvitundinni á meðan ég held áfram með líf mitt. 

Svo þegar að dagurinn kemur þá er ég nú þegar búin að búa til outfit í hausnum á mér. En þegar það outfit virkar ekki þá fer ég alveg í rugl.

Birta segir að oft myndist hugmyndir af klæðnaði í undirmeðvitundinni hjá sér.Aðsend

Hvernig myndirðu lýsa stílnum þínum?

Ég get verið algjör skvísa en get líka verið algjör gaur. Ég elska að blanda því smá saman, fara í hæla en vera samt í hettupeysu.

Birtu finnst gaman að blanda ólíkum eiginleikum saman í tískunni. Hér klæðist hún húfu sem hún heklaði. Aðsend

Hefur stíllinn þinn breyst mikið í gegnum tíðina og hvernig þá?

Já, guð. Ég var alltaf að prófa einhver ný lúkk í grunnskóla og menntaskóla og mörg þeirra voru mjög misheppnuð. Ég var samt alltaf í einhverju sem mér fannst flott þó svo að það hafi ekki verið í tísku. Mamma mín leyfði mér ekki að eiga Pink buxurnar sem allir áttu þannig ég þurfti að finna eitthvað annað. 

Ég held að ég sé enn svoleiðis. Ég klæðist bara því sem mér finnst flott án þess að eltast við tískuna en stundum er það sem mér finnst flott líka í tísku.
Birta klæðist því sem henni finnst flott án þess að elta tískubylgjur.Aðsend

Nýturðu þess að klæða þig upp?

Já, sérstaklega þegar maður hefur ekki gert það í einhvern tíma. Þá fæ ég svona löngun til að gera mig sæta og fína. En ég nýt þess líka að hoppa bara í víðar gallabuxur og góða víða peysu.

Birta segir að stundum kalli það rosalega á sig að klæða sig upp.Aðsend

Hvaðan sækirðu innblástur í tískunni?

Út um allt eiginlega, stundum þegar ég er þreytt á mínum fötum þá kíki ég í fataskápinn hjá kæró, fæ innblástur þaðan og stel nokkrum flíkum. Svo er ég líka mikið í því að fylgjast með fólki sem mér finnst nett á samfélagsmiðlum á borð við Instagram eða Tiktok og sækja innblástur frá þeim.

Ertu með einhver boð og bönn þegar það kemur að klæðaburði?

Þetta mun hljóma eins og algjör klisja en bara virkilega vera í því sem þér finnst flott og líður vel í. Ekki vera í því sem þér finnst ekki flott og þér líður ekki vel í. 

Það er ekkert verra en að klæðast einhverri flík sem þér líður ekki vel í.

Hver er eftirminnilegasta flík sem þú hefur klæðst og afhverju?

Oh, ég á buxur sem eru með ísbjörnum á. Þær voru það fyrsta sem ég thriftaði, þ.e. keypti á nytjamarkaði, og það tók mig svona hálft ár að mana mig upp í að fara í þeim í skólann. Þær voru eitthvað svo ótrúlega öðruvísi á þeim tíma en mér fannst þær og finnst enn svo flottar. Þegar ég loksins þorði að vera í þeim þá var ég alltaf í þeim og fékk mörg hrós. Ég passa ekki lengur í þær en ég mun eiga þær að eilífu.

Ísbjarnabuxurnar eru eftirminnilegar fyrir Birtu.Aðsend

Býrðu yfir einhverju góðu ráði þegar það kemur að tísku?

Þessi flík sem þú keyptir fyrir löngu síðan en hefur aldrei þorað að fara í, farðu í hana. 

Að púlla eitthvað er bara hugarástand, þú getur púllað hvað sem er. 

Þú þarft bara að klæðast flíkinni og trúa því að þú sért að púlla hana.

Hér er hægt að fylgjast með Birtu á samfélagsmiðlinum Instagram.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×