Tíska og hönnun

Týnir öllu þannig að flest staldrar stutt við í töskunni

Dóra Júlía Agnarsdóttir skrifar
Kristín Pétursdóttir er viðmælandi í Hvað er í töskunni?
Kristín Pétursdóttir er viðmælandi í Hvað er í töskunni? Grafík/Vísir

Leikkonan og áhrifavaldurinn Kristín Pétursdóttir segist ekki dugleg að halda röð og reglu í töskunni sinni og á það til að týna hlutum, þar með talið töskum. Hún er viðmælandi í fasta liðnum Hvað er í töskunni? og opnar töskuna sína fyrir lesendum Vísis.

Kristín er almennt meira fyrir litlar töskur og er Prada buddan hennar í miklu uppáhaldi.

Það leynist ýmislegt í töskunni hjá Kristínu Péturs. Grafík/Vísir

Hvað er í töskunni þinni og segðu okkur aðeins frá því sem er?

Ég er ekkert voðalega dugleg að ganga með tösku en ég elska þessa litlu Prödu sem ég næ að troða daglegum nauðsynjum í, sem væri þá helst bíllykillinn, eitthvað í hárið, gloss eða varasalvi, sólgleraugu, tyggjó og góður ilmur!

Bíllykillinn, eitthvað í hárið, gloss eða varasalvi, sólgleraugu, tyggjó og góður ilmur eru nauðsynjar í töskunni hennar Kristínar. Aðsend

Hefur einhver hlutur tilfinningalegt gildi?

Ekki beint, ég týni öllu og þá sérstaklega sólgleraugum og glossum, þannig flest staldrar stutt við í töskunni (mér tókst meira segja að týna Diesel töskunni minni í fyrra ef einhver hefur rekist á hana). 

En ég hef ótrúlega gaman af því að kíkja ofan í tösku eða veski og finna þar til dæmis lestarmiða frá útlöndum, teikningar frá syni mínum eða þess háttar sem vekur upp góðar minningar.

Er eitthvað sem er alltaf í töskunni þinni?

Síminn held ég að sé það eina sem mér hefur ekki tekist að tapa og er yfirleitt alltaf með mér.

Diesal taskan umrædda sem Kristín því miður týndi. Aðsend

Hver er þín uppáhalds taska og afhverju?

Litla prada buddan er kannski í mestri notkun og svo á ég eina silkitösku frá Opera sport sem allt kemst fyrir í og passar við allt.

Prada buddan er mest nýtta taskan hjá Kristínu.Aðsend

Ertu dugleg að taka til í töskunni þinni og halda röð og reglu?

Nei alveg þokkalega ekki. Ég er alltaf að flýta mér, með allt dálítið út um allt og á það til að hrúga alls konar dóti ofan í þær. Ég kem oft sjálfri mér á óvart með hvað leynist þar! En ég er að vinna í þessu.

Kristín segist þokkalega ekki passa vel upp á skipulagið í töskunni. Aðsend

Ertu gjarnan með margar töskur á þér eða margar til skiptanna?

Yfirleitt er ég dálítið að swinga á milli eftir tilefni, sérstaklega í útlöndum. Þá er gott að geta valið eftir outfitti eða stemningu.

Kristín sveiflast á milli þess að nota stóra og litla tösku. Aðsend

Stór eða lítil taska og afhverju?

Mér finnst mjög gott oft að hafa litla því þá er ég snögg að finna það sem mig vantar og kem engum óþarfa fyrir, en stundum er maður bara í þannig fíling að hafa allt í einum stórum totebag, til að geta til dæmis hoppað í sund eða að versla.

Aðsend

Tengdar fréttir

Louis Vuitton taskan sem bæði týndist og fannst í uppáhaldi

Það er nóg um að vera hjá Manúelu Ósk framkvæmdarstjóra Ungfrú Ísland en hún er dugleg að ferðast vegna starfs síns og er því nauðsynlegt að eiga góða tösku. Manúela Ósk er viðmælandi í fasta liðnum Hvað er í töskunni? hér á Vísi.  

Er skipulagsfrík og tekur reglulega til í töskunni

Kírópraktorinn og smekkmaðurinn Guðmundur Birgir Pálmason, jafnan þekktur sem Gummi Kíró, leggur mikið upp úr því að halda góðu skipulagi á töskunum sínum. Hann er viðmælandi í liðnum Hvað er í töskunni þinni? 

Alltaf með nasl í töskunni og þjáist af matarást á háu stigi

Markaðsstjórinn og ofurskvísan Pattra Sriyanonge lifir viðburðaríku lífi og er því mikilvægt fyrir hana að vera alltaf með réttu hlutina í töskunni. Lífið á Vísi tók púlsinn á henni í nýjum föstum lið sem heitir Hvað er í töskunni þinni?






Fleiri fréttir

Sjá meira


×