Lífið

Hvílir sig á samfélagsmiðlum og sjálfs­fróun

Svava Marín Óskarsdóttir skrifar
Nökkvi Fjalar ætlar sér stóra hluti á árinu 2024.
Nökkvi Fjalar ætlar sér stóra hluti á árinu 2024. HI beauty

Nökkvi Fjalar Orrason ætlar að taka sér níutíu daga hlé frá samfélagsmiðlum og sjálfsfróun. Hann ætlar að vakna snemma, borða hollt og leggja allt sitt í vinnuna.

Þetta kemur fram í færslu Nökkva Fjalars á Instagram. Þar segist hann leggja í breytingarnar til að geta einbeitt sér að áhrifavaldafyrirtækinu sínu Lydiu.

Nökkvi hefur undanfarin ár verið búsettur í London. Þar var hann þar til í vor hluti af fyrirtækinu Swipe Media en seldi hlut sinn til sameigenda. Við tók uppbygging Lydiu sem hann ætlar að helga næstu þrjá mánuði.

Nökkvi varð einhleypur á liðnu ári eftir að upp úr slitnaði í sambandi hans og Emblu Wigum förðunarfræðings. Í færslunni á Instagram telur Nökkvi upp breytingarnar sem verða á næstu níutíu dögum.

Hann ætlar að hverfa af samfélagsmiðlum, vakna fyrir klukkan fimm, stunda líkamsrækt sex sinnum í viku, borða hollan mat, fasta þrisvar í viku og þá verður engin sjálfsfróun á dagskrá. Hann ætlar að lesa eða hlusta á 24 bækur á þessum tíma, taka inn vítamínin sín og gefa allt í fyrirtækið sitt.

„Lífið verður aldrei samt ef þú hverfur í níutíu daga. Sjáumst aftur eftir níutíu daga,“ segir Nökkvi Fjalar.


Tengdar fréttir

Nökkvi Fjalar og Embla hvort í sína áttina

Frumkvöðullinn Nökkvi Fjalar Orrason og Embla Gabríela Wigum, förðunarfræðingur og samfélagsmiðlastjarna eru farin hvort í sína áttina. Parið byrjaði saman vorið 2022.

Nökkvi fylgir hjartanu og yfirgefur Swipe

Nökkvi Fjalar Orrason hefur sagt skilið við fyrirtækið Swipe. Meðeigendur Nökkva taka við keflinu en sjálfur ætlar hann að einbeita sér að nýju félagi sem útbýr hugbúnað fyrir áhrifavalda.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×