Innlent

Lét af­lífa hvolpinn og fær engar skaða­bætur

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Samkvæmt heimildum fréttastofu var um Labrador hvolp að ræða.
Samkvæmt heimildum fréttastofu var um Labrador hvolp að ræða. Getty

Hundaræktendur þurfa ekki að endurgreiða konu sem aflífaði veikan hvolp sem hún hafði keypt af þeim. Þar vó þungt að hún ákvað að láta aflífa hvolpinn áður en ítarleg skoðun gat farið fram á honum.

Það var í september 2022 sem konan keypti hvolp af ræktendunum á 380 þúsund krónur, þá átta vikna gamlan. Í janúar 2023 fór að bera á því að hvolpurinn ætti erfitt með ákveðnar hreyfingar.

Leitaði konan til dýralæknis sem tók röntgenmyndir. Þær sýndu bólgur í hnjám hvolpsins og gekkst hann undir bólgueyðandi og verkjastillandi lyfjameðferð. Hvolpurinn fór aftur í skoðun þann 20. mars og í framhaldi af þeirri skoðun ákvað konan að láta aflífa hvolpinn. Taldi hún ástand hans fara versnandi og var hann aflífaður daginn eftir.

Taldi hún hvolpinn hafa verið haldinn galla við kaupin og krafðist endurgreiðslu að fullu eða hluta. Ræktendurnir neituðu endurgreiðslu.

Ræktendur vildu frekari greiningu

Kærunefnd vöru- og þjónustukaupa fékk málið á sitt borð með kæru konunnar. Nefndin vísaði í gögn málsins þar sem fram kom að ræktendurnir töldu ótímabært að aflífa dýrið í lok febrúar sökum aldurs og þeirrar staðreyndar að hvolpurinn væri enn að stækka.

Hvöttu þau til að fá aðra myndgreiningu, leita álits annars dýralæknis eða senda röntgenmyndir af hvolpinum til sérfræðinga erlendis í því skyni að fá sjúkdómsgreiningu. Konan sagðist ekki sjá ástæðu til þess vegna þess kostnaðar sem fylgdi. Niðurstaðan myndi engu breyta um möguleika hvolpsins.

Kærunefndin telur að þar sem ekki hafi verið leitað frekara sérfræðiálits liggi ekki fyrir hvort ástand hvolpsins verði rakið til meðfædds sjúkdóms eins og konan taldi eða hvort einkennin hafi verið áunnin eins og ræktendurnir töldu líklegast.

Skammur fyrirvari

Konan hafi sent ræktendunum skilaboð að kvöldi 20. mars og upplýst um ákvörðun sína að láta aflífa hvolpinn. Um leið hafi hún gert kröfu um afslátt af kaupverðinu. Daginn eftir hafi hvolpurinn verið aflífaður. Nefndin segir óumdeilt í málinu að ákvörðun um aflífun hafi verið tekin af konunni en ekki að læknisráðið og sú ákvörðun verið tilkynnt ræktendum með innan við sólarhringsfyrirvara án nokkurs gefins kostar á samráði.

Í ljósi þess hafi konan ekki veitt ræktendunum tækifæri til að meta hvort ástand hvolpsins væri þannig að óhjákvæmilegt væri annað en að aflífa hann. Þar sem hann hefði þegar verið aflífaður væri um leið ómögulegt tað freista þess að sýna fram á að ástandið hafi ekki verið fyrir hendi við afhendingu hvolpanna hálfu ári fyrr.

Var kröfu konunnar um riftun kaupanna og skaðabætur hafnað.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×