Rafíþróttir

Til­þrifin: RavlE um­kringir sig í reyk og gabbar fjóra

Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar
Triple G náði ekki að finna RavlE frekar en aðrir meðlimið FH.
Triple G náði ekki að finna RavlE frekar en aðrir meðlimið FH. Stöð 2 eSport

Vísir birtir Elko tilþrif kvöldsins úr Ljósleiðaradeildinni í Counter Strike eftir hvern keppnisdag í allan vetur. Í þetta sinn er það RavlE í liði NOCCO Dusty sem á heiðurinn af tilþrifum kvöldsins.

NOCCO Dusty vann góðan endurkomusigur gegn FH á öðrum Ofurleugardegi tímabilsins í gær þar sem heil umferð fór fram. FH-ingar unnu fyrstu sex lotur viðureignarinnar, en Dusty snéri taflinu við og vann að lokum 13-8 sigur.

Það var einmitt eftir þessa 6-0 byrjun FH sem RavlE sýndi bestu tilþrif gærkvöldsins. Hann var þá einn á móti fjórum meðlimum FH, en í staðinn fyrir að reyna að berjast í gegnum andstæðinga sína ákvað RavlE einfaldlega að fela sig.

RavlE kom sér fyrir hjá sprengjunni og sleppti reyksprengju við lappirnar á sér. FH-ingar náðu ekki að finna RavlE sem aftengdi sprengjuna óáreyttur og hóf endurkomuna fyrir Dusty.

Klippa: Elko tilþrifin: RavlE umkringir sig í reyk og gabbar fjóra



Fleiri fréttir

Sjá meira


×