Innlent

Raf­magn komið á Grinda­vík um loft­línu í kvöld

Magnús Jochum Pálsson skrifar
Búið er að reisa loftlínuna yfir hraunið sem rann yfir Grindavíkurveg og koma þannig rafmagni á bæinn á ný.
Búið er að reisa loftlínuna yfir hraunið sem rann yfir Grindavíkurveg og koma þannig rafmagni á bæinn á ný. HS Veitur

Búið er að koma rafmagni til Grindavíkur um loftlínu sem reist var yfir hraunið sem rann yfir Grindavíkurveg og olli því að stofnstrengir Grindavíkur skemmdust. Rafmagn var komið á línuna klukkan átta í kvöld og í kjölfarið var slökkt á varavélum Landsnets.

Þetta segir í tilkynningu frá HS Veitum.

Þar segir að vinnuflokkar HS Veitna hafi unnið sleitulaust að því síðustu daga í samvinnu við Almannavarnir, Landsnet og HS Orku að halda rafmagni á Grindavík eftir að hraun fór yfir stofnlagnir milli Svartsengis og Grindavíkur í eldgosi sem hófst um þar síðustu helgi. 

Það hafi tekist að koma á rafmagni á bæinn á innan við tveimur sólarhringum frá því að eldgos hófst og var það gert með strengjum sem liggja undir heitu hrauninu. Annar strengur af tveimur hafi gefið sig síðasta föstudag en í ljós kom að hinn strengurinn væri enn í lagi og var því rafmagn aftur komið á bæinn skömmu síðar.

Á sama tíma hafi verið hafinn undirbúningur við að reisa loftlínu yfir hraunið því ekki væri ljóst hve lengi seinni strengurinn myndi duga undir heitu hrauninu. Snemma á sunnudagsmorgun hafi strengurinn gefið sig endanlega. Varavélar Landsnets hafi séð bænum fyrir rafmagni þar til nýja loftlínan komst í gagnið í dag og hefur hún fengið nafnið Sundhnjúkahraunslína 1.


Tengdar fréttir

Rafmagn fór af Grindavík í nótt

Rafmagn fór af Grindavík kl. 03:30 í nótt, þegar stofnstrengur, sem fór undir hraun í eldgosi um síðustu helgi gaf sig. Hluti bæjarins er nú á varaafli.

Raf­magn aftur komið á Grinda­vík

Rafmagn er eftir komið á Grindavík eftir að hafa farið út um klukkan 7:15 í morgun vegna bilunar í stofnstreng sem liggur undir hrauni í kjölfar eldgossins um helgina.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×