Innlent

Kárs­nes­skóla skipt upp í tvo skóla

Oddur Ævar Gunnarsson skrifar
Frá skólalóðinni á Kársnesinu í Kópavogi.
Frá skólalóðinni á Kársnesinu í Kópavogi. Kópavogsbær

Kársnesskóla verður skipt upp í tvo sjálfstæða skóla á skólaárinu 2024 til 2025 samkvæmt tillögu menntasviðs Kópavogsbæjar sem samþykkt hefur verið í bæjarstjórn Kópavogs. Meginástæðan er fjölgun nemenda.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá bænum. Þar segir að lagt sé til að skólanum verði skipt þannig að í húsnæði við Vallargerði verði 5.-10. bekkur og í nýrri skólabyggingu við Skólagerði verði 1.-4. bekkur auk fjögurra deilda leikskóla.

Þá segir að megin ástæða skiptingar skólans sé fjölgun nemenda á Kársnesi. Undanfarin ár hafi nemendafjöldi skólans verið 600-700. Fyrirséð sé að enn muni fjölga á sama tíma og relstur leikskólans í nýju húsnæði skólans við Skólagerði muni bætast við.

„Með því að skipta Kársnesskóla í tvo sjálfstæða skóla verður hægar um vik fyrir skólastjórnendur að hafa góða rekstrarlega og faglega yfirsýn yfir skólastarfið,“ segir Anna Birna Snæbjörnsdóttir, sviðsstjóri menntasviðs. Fram kemur að í Kópvogi hafi þessi leið þegar verið farin með skiptingu Hörðuvallaskóla í tvo skóla, Hörðuvallaskóla og Kóraskóla, og hefur reynslan af því verið mjög góð, að því er segir í tilkynningunni.

Stjórnendur Kársnesskóla hafi tekið þátt í samráði og undirbúningi vegna fyrirhugaðra breytinga. Á næstu vikum verði auglýst eftir nýjum skólastjórnendum sem muni leiða faglegan undirbúning við þróun samrekins leik- og grunnskóla, sem sé nýbreytni í skólastarfi í Kópavogi. Segir í tilkynningunni að sú vinna verði unnin í samvinnu við skólasamfélagið allt, nemendur, foreldra og starfsfólk.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×