Innlent

Kafa ofan í „stóra bíla­stæða­málið“

Bjarki Sigurðsson skrifar
Dóra Björt Guðjónsdóttir, borgarfulltrúi Pírata, og mæðgurnar Elísabet Ýr Sveinsdóttir og Anna Ringsted.
Dóra Björt Guðjónsdóttir, borgarfulltrúi Pírata, og mæðgurnar Elísabet Ýr Sveinsdóttir og Anna Ringsted. Vísir/Einar/Sigurjón

Dóra Björt Guðjónsdóttir, borgarfulltrúi Pírata, segir borgarstjórn hafa ákveðið að leggjast heildstætt yfir verklag við útgáfu sekta vegna stöðubrota í Reykjavík. Nýlega var kona sektuð fyrir að leggja í innkeyrslu á eigin lóð. 

Um síðustu helgi var rætt við Önnu Ringsted, íbúa við Frakkastíg í Reykjavík, í kvöldfréttum Stöðvar 2. Þar ræddi hún um sekt sem hún hafði fengið fyrir að leggja í innkeyrslu á eigin lóð. Hún og dóttir hennar mótmæltu sektinni en fengu höfnun. 

Þær mæður fengu aftur á móti afsökunarbeiðni frá borginni og sektina endurgreidda á þriðjudag, þremur dögum eftir að fréttin var birt. Borgin viðurkenndi þar að stöðumælavörður hafi gert mistök þegar hann sektaði Önnu. Þá hafi Bílastæðasjóður ekki átt að hafna beiðni mæðgnanna um endurgreiðslu þegar þær mótmæltu sektinni. 

Sjá einnig: Fengu af­sökunar­beiðni og sektin verður endur­greidd

Kafa ofan í málið

Dóra Björt Guðjónsdóttir, borgarfulltrúi Pírata og formaður umhverfis- og skipulagsráðs borgarinnar, segir nú í færslu á Facebook að borgin ætli að skoða það sem hún kallar „stóra bílastæðamálið“ og verklag í kringum álagningu gjalda vegna stöðubrota. 

„Undanfarið hefur verið töluverð umræða um breytt verklag við eftirlit með bílastæðum á einkalóðum, sér í lagi í miðborg og vesturbæ. Þetta breytta verklag kom aftan að mörgum og að mínu mati hefði upplýsingagjöf þurft að vera mun betri sem og fyrirvarinn meiri, í anda þjónustustefnu borgarinnar,“ segir í færslu Dóru.

„Sömuleiðis hafa komið upp tilfelli þar sem sektun hefur orðið fyrir mistök eins og við Frakkastíginn eins og frægt er orðið. Mér þótti það mál ansi sérstakt og fannst full ástæða til að það yrði skoðað betur sem og var gert, sem endaði með því að sektin var endurgreidd og gleðst ég yfir því að hið rétta hafi náð fram að ganga.“

Klippa: Má ekki lengur leggja fyrir utan heima hjá sér

Skipa starfshóp

Hún bendir á tillögu sem samþykkt var í umhverfis- og skipulagsráði í gær en þar segir að stofnaður verði starfshópur sem vinni drög að verklagsreglum um framkvæmd álagningu gjalda vegna stöðubrota í Reykjavík með áherslu á fræðslu, upplýsingagjöf og góða þjónustu við íbúa.

„Við erum auðmjúk gagnvart þeim tækifærum sem reglulega koma upp í fjölbreyttum verkefnum borgarinnar til að bæta verklag, herða skrúfur og taka til í ferlunum okkar og við brettum viljug upp ermar þar sem þarf. Líkt og nú,“ segir Dóra að lokum. 



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×