Innlent

Skóla- og leikskólastarf fellur niður í Reykja­nes­bæ

Margrét Björk Jónsdóttir skrifar
Hraun rann í morgun yfir heitavatnslögninasem skaffar Keflvíkingum og öðrum sem búa í Reykjanesbæ heitu vatni.
Hraun rann í morgun yfir heitavatnslögninasem skaffar Keflvíkingum og öðrum sem búa í Reykjanesbæ heitu vatni. Vísir/Vilhelm

Grípa þarf til lokana víða í starfsemi Reykjanesbæjar vegna skorts á heitu vatni. Skóla- og leikskólastarf fellur niður á morgun og öll íþróttamannvirki verða lokuð.

Í tilkynningu á Facebook síðu Reykjanesbæjar kemur fram að velferðarsvið starfi að óbreyttu út daginn í dag. Leik- og grunnskólar ásamt tónlistarskóla starfa til kl. 16:00 að öllu óbreyttu. Íþróttahús munu loka klukkan 17 og öllum leikjum hefur verið aflýst. Söfn, ráðhús og bókasafn loka klukkan 16. 

Á morgun verður eftirfarandi starfsemi skert:

  • Allt skólastarf í leik- og grunnskólum auk tónlistarskóla fellur niður.
  •  Öll íþróttamannvirki verða lokuð.
  • Starfsemi Velferðarsviðs verður með eftirfarandi hætti:
  • Hefðbundin starfsemi í sérstökum búsetuúrræðum. Suðurgata, Seljudalur og Stapavellir.
  • Björgin – opið í Lautinni
  • Hæfingarstöðin- lokað
  • Selið – lokað
  • Dagdvöl og félagsstarf á Nesvöllum – lokað
  • Heima- og stuðningsþjónusta verður skert en haldið verður uppi nauðsynlegri þjónustu.
  • Ráðhús og bókasafn – lokað
  • Söfn lokuð


Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×