Lífið

Öðru­vísi og góm­sætur blóm­vöndur á Valentínusar­daginn

Svava Marín Óskarsdóttir skrifar
Hildur Rut er sannkallaður matgæðingur og deilir iðulega fjölda girnilegra uppskrifta með fylgjendum sínum á Instagram.
Hildur Rut er sannkallaður matgæðingur og deilir iðulega fjölda girnilegra uppskrifta með fylgjendum sínum á Instagram. Hildur Rut

Hildur Rut Ingimarsdóttir, matarbloggari og samfélagsmiðlafulltrúi S4S, deildi hugmynd að öðruvísi og ljúffengum blómvendi fyrir ástina í tilefni af Valentínusardeginum á Instagram. 

„Jarðaberjarósir, brætt Toblerone og freyðivín er fullkomið trít fyrir Valentínusardaginn. Komdu ástinni þinni á óvart með öðruvísi blómvendi sem er mjög ljúffengur,“ skrifar Hildur við færsluna.

Jarðaber, súkkulaði og rósavín, leiðin að hjarta margra kvenna.Hildur Rut

Eina sem þú þarft:

Grillspjót eða kokteilpinnar 

Borði 

Jarðaber

Toblerone súkkulaði

Aðferð:

Skerið í jarðarberin þannig að þau mynda rósir (sjá aðferð hér: www.instagram.com/reel/C3TYaBmoAcJ/).

Skreytið pinnana með slaufum og stingið þeim í berin. 

Bræðið Toblerone yfir vatnsbaði og berið fram með jarðarberjarósunum.

Hildur er sannkallaður matgæðingur og má nálgast fleiri girnilegar uppskriftir á Instagram-síðu hennar og á Trendnet.is






Fleiri fréttir

Sjá meira


×