Íslenski boltinn

Gylfi Þór aftur orðaður við Val

Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar
Gylfi Þór Sigurðsson sló markamet Eiðs Smára Guðjohnsen og Kolbeins Sigþórssonar þegar hann skoraði tvö mörk gegn Liechtenstein í október.
Gylfi Þór Sigurðsson sló markamet Eiðs Smára Guðjohnsen og Kolbeins Sigþórssonar þegar hann skoraði tvö mörk gegn Liechtenstein í október. vísir/Hulda Margrét

Knattspyrnumaðurinn Gylfi Þór Sigurðsson er aftur orðaður við Val. Hann er um þessar mundir án samnings.

Frá þessu greinir Fótbolti.net en áður en Gylfi Þór samdi við Lyngby í efstu deild danska boltans þá mætti hann á æfingu með Val og var í kjölfarið orðaður við liðið. Gylfi Þór lék aðeins sex leiki með Lyngby.

Skömmu fyrir áramót, áður en danska deildin fór í vetrarfrí, gerðu Gylfi Þór og Lyngby heiðursmannasamkomulag þar sem hann var að glíma við meiðsli og vildi leikmaðurinn ekki vera á launum fyrst hann gat ekki spilað. Hann hefur undanfarið verið í endurhæfingu á Spáni.

Gylfi Þór hefur gefið út að hann stefni á að halda áfram að spila og vill vera klár í umspilsleiki Íslands gegn Ísrael í umspili um sæti á Evrópumótinu næsta sumar. Það var því talið líklegt að hann myndi snúa aftur til Kaupmannahafnar en nú virðist sem hann gæti samið við Val.

„Ég hef ekki talað við hann en auðvitað væri gaman að sjá hann í Valstreyjunni á þessu ári. Þetta eru sögusagnir en ég held að þetta sé eitthvað sem menn eru meira að láta sig dreyma um,“ sagði Arnar Grétarsson, þjálfari Vals, í viðtali við Fótbolti.net.

Arnar bætti við að það væri mjög gaman ef Gylfi Þór myndi klára ferilinn á Íslandi en hann vissi þó ekki hvort það væri í myndinni.

„Ég held að við séum ekki beint að bíða eftir því að hann verði næsta nafn inn hjá okkur. Væri samt æðislegt og ég myndi fagna því ef að því yrði,“ sagði Arnar einnig.

Gylfi Þór bætti markamet íslenska karlalandsliðsins þegar hann skoraði tvívegis í öruggum 4-0 sigri á Liechtenstein 16. október síðastliðinn. Eftir það lék hann nokkra leiki í röð með Lyngby en var ekki í leikmannahóp liðsins þegar það sótti Vejle heim 12. nóvember. Síðan þá hefur hann ekkert spilað.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×