Innlent

Björguðu einum út úr í­búðinni

Árni Sæberg skrifar
Stefnir Snorrason stýrði aðgerðum á vettvangi.
Stefnir Snorrason stýrði aðgerðum á vettvangi. Vísir/Sigurjón

Tvei íbúar voru inni í íbúð þar sem eldur kviknaði laust fyrir klukkan 09:30 í morgun. Annar komst út af sjálfsdáðum en slökkvilið bjargaði hinum út úr íbúðinni.

Þetta segir Stefnir Snorrason, varðstjóri hjá Slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu í samtali við fréttastofu, á vettvangi.

„Við fengum tilkynningu um lausan eld í íbúð hérna laust fyrir klukkan hálf tíu í morgun. Það var talið að tvær manneskjur væru inni í íbúðinni, sem reyndist rétt, og þeim var bjargað. Annar var kominn út reyndar af sjálfsdáðum en hinn var sóttur inn. Síðan var eldurinn slökktur og öðrum komið í viðeigandi skjól. Vettvangurinn hefur núna verið afhentur lögreglu og er í rannsókn.“

Svipmyndir frá vettvangi má sjá í spilaranum hér að neðan:

 



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×