Lífið

Seiðandi Svala vekur at­hygli: „Vá æðis­lega fal­lega vaxin“

Svava Marín Óskarsdóttir skrifar
Myndin hefur vakið töluverða athygli á Instagram.
Myndin hefur vakið töluverða athygli á Instagram. Svala

Tónlistarkonan Svala Björgvinsdóttir birti seiðandi mynd af sér á samfélagsmiðlum í gær þar sem hún pósar í agnarsmáum nærbuxum og hlýrabol. 

Þar segist Svala geta verið með tan allan ársins hring ef maður notar rétta brúnkukremið. Söngkonan úr Hafnarfirði er komin með sumarlit þótt aðeins sé komið fram í mars.

Myndin hefur vakið töluverða athygli en um fimm hundruð manns hafa líkað við færsluna. Auk þess hafa fjölda ummæla verið skrifuð við myndina þar sem Svölu er hrósað fyrir fallegt vaxtalag og kynþokka.

„Vá æðislega fallega vaxin,“ skrifar maður við myndina. „Vóó what a Babe,“ skrifar annar.

Svala er ein eftirsóttasta einhleypa kona landsins eftir að ástin kulnaði á milli hennar og Alexander Egholm, oftast nefndur Lexi Blaze, í október í fyrra.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×