Innlent

Hafnartúnshúsið mikið skemmt eftir eldinn

Hallgerður Kolbrún E. Jónsdóttir skrifar
Slökkvistarfi lauk um klukkan eitt í nótt.
Slökkvistarfi lauk um klukkan eitt í nótt. Jakub Kopecký

Gríðarmikið tjón varð á sögufrægu Hafnartúnshúsi á Selfossi eftir að eldur kviknaði í því í gærkvöldi. Varaslökkviliðsstjóri í Árnessýslu segir slökkvistarf hafa gengið vel en sorglegt sé að horfa á sögufrægt hús verða eldi að bráð.

Eldur kviknaði í Hafnartúnshúsinu á áttunda tímanum í gærkvöldi og var allt tiltækt slökkvilið kallað til. Húsið stendur við suðurenda nýja miðbæjarins á Selfossi og stóð til að byggja það upp á næstu árum. Útkall barst Brunavörnum Árnessýslu rétt fyrir klukkan átta í gærkvöldi.

„Við sendum strax út stórt útkall á Selfossstöðina okkar. Slökkvistarf gekk vel, var lokið um eitt. Húsið er mjög skemmt en stendur enn uppi,“ segir Lárus Guðmundsson, varaslökkviliðsstjóri í Árnessýslu.

„Við vorum með slökkviliðsmenn þarna til að verða þrjú í nótt. Síðasti maður var að fara þá. Síðan vaktaði lögreglan húsið.“

Húsið var byggt árið 1947 af Sigurði Ó. Ólafssyni, sem var alþingismaður Árnesinga frá 1959 til 1967. Í húsinu var kaupfélagið Höfn starfrækt en síðustu árin hefur ekki verið föst búseta í því.

„Það er alltaf vont þegar svona sögufræg og merkileg hús brenna. Þetta er gamalt hús, sem var einangrað með sagi og öðru þannig að þetta geta oft reynst mjög erfiðir eldsvoðar í þessum gömlu húsum,“ segir Lárus.

Íbúar Selfoss voru í gærkvöldi hvattir til að loka gluggum vegna mikils reyks sem lagði frá eldinum.

„Það var talsvert mikill eldur þegar fyrstu slökkviliðsmenn komu á staðinn. Það tókst vel að slá á mesta eldinn í upphafi. Mikinn reyk lagði yfir Selfoss á tímabili,“ segir Lárus. Vettvangurinn hefur nú verið afhentur lögreglu til rannsóknar og er von á tilkynningu frá henni síðar í dag.


Tengdar fréttir

Myndir: Selfyssingar syrgja sögufrægt hús

Ljóst er að gríðarmikið tjón hefur orðið á sögufrægu Hafnartúnshússi á Selfossi. Húsið var byggt árið 1947 og hefur lengi verið eitt helsta kennileiti bæjarins. 

„Mikil menningarverðmæti farin“

„Það stóð til að gera þetta hús upp sem hluta af nýjum miðbæ. Þetta er sögufrægt hús og þess vegna mikil menningarverðmæti farin,“ segir Leó Árnason stjórnarformaður Sigtúns sem á Gamla Hafnartúns-húsið á Selfossi, þar sem eldur kviknaði í kvöld. Slökkvistörf standa enn yfir en ljóst er að tjónið er mikið. 



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×