Íslenski boltinn

Besta sætið: Engar af­sakanir lengur hjá Val

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Valur mætir ÍA í 1. umferð Bestu deildar karla sunnudaginn 7. apríl.
Valur mætir ÍA í 1. umferð Bestu deildar karla sunnudaginn 7. apríl. vísir/hulda margrét

Ekkert annað en Íslandsmeistaratitill kemur til greina hjá Valsmönnum í sumar. Þetta segja Atli Viðar Björnsson og Baldur Sigurðsson.

Atli Viðar og Baldur voru gestir í Besta sætinu, hlaðvarpi íþróttadeildar Sýnar, þar sem fjallað var um Bestu deild karla.

Valur endaði í 2. sæti Bestu deildarinnar á síðasta tímabili, á því fyrsta undir stjórn Arnars Grétarssonar, en stefnir á að stíga stærsta skrefið í sumar og verða Íslandsmeistarar. Og ekkert annað er í boði fyrir lið með þennan leikmannahóp.

„Þetta er annar séns og í raun lokaséns fyrir þetta lið til að vinna því þessu er púslað saman til að ná árangri strax. Auðvitað eru þeir með allt til alls. Þetta er frábærlega mannað lið. Það eru í raun engar afsakanir lengur. Þetta lið þarf að ná árangri og sækja titil,“ sagði Atli Viðar.

„Mér fannst það mjög áhugavert að í þættinum hans Baldurs [Lengsta undirbúningstímabil í heimi] er Arnar Grétarsson mjög hreinskilinn með það að hann langar í titil og vantar titil. Það að hann hafi minnst á það er áhugavert. Það er í raun ekkert en titill sem kemur til greina á Hlíðarenda.“

Vantar varnarmiðjumann

Hlynur Freyr Karlsson átti stórgott tímabil með Val í fyrra en er farinn til Haugasunds í Noregi. Valsmenn seldu einnig Birki Heimisson til Þórs, Haukur Páll Sigurðsson er hættur og eru þunnskipaðir í stöðu aftasta miðjumanns.

„Þeir eru 3-0 undir í þessari stöðu. Við skulum gefa Hauki Páli virðingu, hann er hættur og hefur verið þeirra besti maður í þessari stöðu í hundrað ár,“ sagði Baldur.

„Þetta er áhyggjuefnið. Það er búið að ræða þetta í allan vetur. Þá er búið að vanta þetta lengi og sérstaklega eftir að Birkir fór, þá urðu raddirnar enn háværari. Ef Gylfi [Þór Sigurðsson] kemur - sem væri frábært fyrir Val og deildina - er fjármagnið þá búið? Ætla þeir þá að gera það besta með þeim miðjumönnum sem þeir eru með?“

Baldur sagði að Arnar gæti einnig notað Elfar Frey Helgason á miðjunni sem og Jakob Franz Pálsson sem lék með KR í fyrra.

Hlusta má á Besta sætið í spilaranum hér fyrir ofan. Þátturinn er einnig aðgengilegur á Spotify sem og öllum hlaðvarpsveitum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×