Íslenski boltinn

Stórleikur í Garða­bænum og Fram mætir þriðju deildarliðinu

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Stjarnan fær KR í heimsókn í sextán liða úrslitum Mjólkurbikars karla.
Stjarnan fær KR í heimsókn í sextán liða úrslitum Mjólkurbikars karla. vísir/diego

Stjarnan og KR mætast í stórleik sextán liða úrslita Mjólkurbikars karla í fótbolta. Dregið var í hádeginu.

Tíu lið úr Bestu deildinni voru í pottinum, fimm úr Lengjudeildinni og eitt úr 3. deildinni. Það er ÍH sem dróst gegn Fram.

Víkingur, sem hefur orðið bikarmeistari fjórum sinnum í röð, mætir Grindavík á útivelli.

Sem fyrr sagði mætast Stjarnan og KR í Garðabænum. Fylkir og HK og KA og Vestri eigast einnig við í innbyrðis leikjum liða úr Bestu deildinni.

Keflavík, sem sló Breiðablik út í gær, mætir ÍA, Afturelding fær Val í heimsókn og Fjölnir og Þór leiða saman hesta sína í Grafarvoginum.

Leikirnir í sextán liða úrslitunum fara fram 16. og 17. maí. 

Sextán liða úrslit Mjólkurbikars karla

  • Fram-ÍH
  • Keflavík-ÍA
  • KA-Vestri
  • Fylkir-HK
  • Stjarnan-KR
  • Afturelding-Valur
  • Fjölnir-Þór
  • Grindavík-Víkingur



Fleiri fréttir

Sjá meira


×